Ólafsfjörður
Við Brimnesveg á Ólafsfirði býðst félagsmönnum SFR í vetur að leigja snyrtilega og rúmgóða 111 fm íbúð með sérinngangi í parhúsi. Á neðri hæð er 1 svefnherbergi með fataskápum, forstofa/hol með fataskáp, stofa, eldhús og stórt baðherbergi með sturtu, þvottavél og góðri innréttingu. Á efri hæð eru 2 herbergi, hol og góð snyrting. Góð aðstaða og svefnpláss er fyrir 6-9 manns Í eldhúsinu er allur almennur borðbúnaður fyrir 12 manns. Íbúðinni fylgir garður með útihúsgögnum og kolagrilli.
Staðarlýsing: Ólafsfjörður er ákaflega fallegur fjörður, umvafinn háum fjöllum. Þar er góð aðstaða fyrir ferðamenn, verslanir, sundlaug, golf, veiði (sjóstangaveiði og veiði í Ólafsfjarðarvatni eða Ólafsfjarðará), bátaleiga, seglbrettaleiga, minigolf, leiktæki fyrir börn, hvalaskoðun o.fl. Til Ólafsfjarðar er 45 mín. akstur frá Akureyri og á leiðinni er m.a. keyrt í gegnum ein lengstu jarðgöng landsins, Múlagöng, sem eru 3.400 metra löng. Ofan við Múlagöng liggur gamli Múlavegurinn, einn hrikalegasti fjallvegur landsins í 300 metra hæð yfir sjávarmáli. Útsýni þaðan er einstakt og hvergi betra að njóta miðsnætursólarinnar á Íslandi.
Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.fjallabyggd.is og www.siglo.is
Nauðsynlegt og gott að taka með: Salernispappír, handsápu og sjampó, sængurfatnað (lín) og lök, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur, plastpoka, eldhúsrúllur, kaffipoka (filter), kol og grillvökva, kerti og eldspýtur, álpappír, krydd, sykur og olíu til steikingar, vasaljós og svo hleðslutæki fyrir gemsann.

Húsið er í sumarleigu (leigt frá 1. júní til 31. ágúst 2012) og er því úthlutað, umsóknarfrestur fyrir sumarið 2012 er til og með 25. mars. Fylla út umsókn hér.
ATHUGIÐ!
- Gæludýr eru stranglega bönnuð í húsunum það gildir líka um gæludýr gesta.
- Reykingar eru stranglega bannaðar.
- Góð umgengni er hagur okkar allra og því er mikilvægt að skilja við eins og við viljum koma að. SFR áskilur sér rétt til að innheimta sérstakt þrifagjald þar sem ekki er nægjanlega vel skilið við.
- Mikilvægt að virða réttan komu- og brottfarartíma, sjá upplýsingar á kvittun.

