Vörðuás
SFR á 3 hús í Vörðuási, það eru hús nr. 11, 12 og 14. Húsin sem er um 47m² skiptast í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Svefnpláss er fyrir 6 í húsinu þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 4 í kojum í barnaherbergi. Stór verönd með heitum potti er við húsið með garðhúsgögnum og kolagrilli.
Það sem fólk þarf alltaf að hafa með sér er: Rúmfatnaður, handklæði, viskustykki,tuskur til þrifa og wc-pappir. þetta gildir um öll hús SFR nema annað sé tekið fram.
Athugið! Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu.
Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF.

