Bjarkarás
SFR á 3 hús í Bjarkarási, það eru hús nr. 3, 5 og 10 en það síðasttalda er sérhannað fyrir fatlaða. Húsin sem er um 60m² skiptast í anddyri, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Svefnpláss er fyrir 8 í húsinu þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 2 í kojum í öðru barnaherberginu en tvö stök rúm í því þriðja. Stór verönd með heitum potti er við húsið með garðhúsgögnum og kolagrilli.
Það sem fólk þarf alltaf að hafa með sér er: Rúmfatnaður, handklæði, viskustykki,tuskur til þrifa og wc-pappir. þetta gildir um öll hús SFR nema annað sé tekið fram.
Athugið! Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu.
Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF.

