Munadarnes
SFR á nú 10 hús á svæðinu sem eru í þremur hverfum;
Hús nr. 10 í Bjarkaráshverfi er sérhannað fyrir hreyfihamlaða. Yfirleitt eru 3 hús í skiptileigu yfir sumarið, þ.e. SFR leigir þau til annarra stéttarfélaga og fær í staðinn hús á öðrum orlofshúsasvæðum. Hér er yfirlitskort yfir bústaðahverfi í Munaðarnesi. Leigutími allt árið.
Sjá myndir úr Munaðarnesi.
Munaðarnes er í um 22 km fjarlægð frá Borgarnesi, í fallegu kjarrivöxnu umhverfi rétt ofan við Norðurá. Stutt er í góðar sundlaugar á svæðinu. Sundlaugin á Varmalandi er einungis í nokkurra kílómetra fjarlægð og sundlaugin í Borgarnesi er ein sú besta á landinu. Almennar upplýsingar um landsvæðið má nálgast á www.vesturland.is.
Golfvöllurinn Glanni var vigður sumarið 2006, og er níu holu völlur í fögru umhverfi. BSRB er aðili að rekstarfélagi klúbbsins. Völlurinn er í næsta nágrenni orlofsbyggða BSRB í Munaðarnesi og Stóruskógum og fá þeir sem eru í aðildarfélögum BSRB helmingsafslátt á völlinn.
Það sem fólk þarf alltaf að hafa með sér er: Rúmfatnaður, handklæði, viskustykki,tuskur til þrifa og wc-pappir. þetta gildir um öll hús SFR nema annað sé tekið fram. Hægt er að leigja rúmfatnað í þjónustumiðstöð.
Opnunartími þjónustumiðstöðvar í Munaðarnesi (s. 525 8440) er sem hér segir:
- Vetraropnun (sept. - maí): Föstudag frá 12-22, laugardag frá 12-18 og sunndag frá 12-16.
- Sumaropnun (júní - ágúst): Mánudag - föstudag frá 10-22, laugardag frá 10-24 og sunnudag frá 12-20.
Kaffi Munaðarnes
Í Munaðarnesi er rekin veitingasala og kaffihús allt árið. Þar er hægt að detta inn í kaffi og með því og njóta friðsældar á sólríkum palli. Einnig er hægt er að panta sali og veitingar og veislur fyrir stærri og minni hópa. Í Kaffi Munaðarnesi eru reglulega uppákomur og tónleikar og hefur staðurinn notið mikilla vinsælda hjá gestum og gangandi, auk þess sem hinir ýmsu hópar hafa nýtt sér aðstöðu fyrir kóræfingar, námskeið, fundi og fleira. Þar má einnig finna fjölbreytta afþreyingu, s.s. tómstundaherbergi með fótboltaspili og biljardborði. Þar er einnig lítil krambúð þar sem hægt er að kaupa brauð,mjólk, grænmeti, Munaðarnessgrillkjötið góða og ýmislegt fleira. Úti er minigolf, leikvöllur og hoppukastali yfir sumartímann. Sjá nánar á www.munadarnes.is.
Opið er alla daga frá kl. 10 22 og lengur um helgar yfir sumarið.
Ferðaþjónustan Munaðarnesi er á facebook.
Athugið! Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu.
Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Bókanir laust" á slánni undir fjallgarðinum.

