Beint á leiðarkerfi vefsins

Kjarnabyggð við Akureyri

Kjarnabyggð útimynd  framan [1600x1200]Orlofshúsið í Kjarnabyggð stendur við Götu mánans og er um 70 m2 að stærð auk kjallara, þar sem m.a. er þvottavél. Svefnstæði eru fyrir 6, þ.e. fyrir 4 í tveimur hjónaherbergjum og fyrir 2 í barnaherbergi. Sængur og koddar eru fyrir 8 manns og borðbúnaður fyrir 10. Góð verönd er í kringum húsið með útihúsgögnum, gasgrilli og heitum potti. Þeir sem þurfa að ferðast um í hjólastól eiga greiðann aðgang að húsinu.

Kjarnabyggð er um 3,5 km frá miðbæ Akureyrar og þar er öll aðstaða til útivistar árið um kring hin ákjósanlegasta. Á svæðinu eru leiksvæði, trimmbrautir, göngustígar og fjallgönguleiðir um óspillta náttúru og á vetrum skíðagöngubrautir og sleðabrekkur við allra hæfi. Frá svæðinu er útsýni um allan Eyjafjörð og fyrir neðan rennur Eyjafjarðaráin þar sem bleikjan spriklar á sumrin. Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.travelnet.is.

Athugið!  Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu. 

Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Bókanir laust" á slánni undir fjallgarðinum. 


Slóðin þín:

Orlofsvefur » Orlofshús á Íslandi » Kjarnabyggð við Akureyri