Húsafell
Húsin nr. 4. og 6. við Hraunbrekkur eru 64 m2, með heitum pottum, tveimur hjónaherbergjum, einu svefnherbergi með þremur rúmstæðum og 30 m2 svefnlofti. Svefnpláss í herbergjum er fyrir 7, þ.e. fyrir 2 og 2 í sitt hvoru hjónaherberginu og fyrir 3 í barnaherbergi. 5 góðar aukadýnur eru á svefnlofti. Góð verönd er við húsin með kolagrilli og útihúsgögn.
Frá Borgarnesi er um klukkustundarakstur í Húsafell og þaðan er hægt að aka yfir í Kaldadal til Þingvalla yfir sumartímann. Í Húsafelli er miðstöð samgangna og þjónustu fyrir mjög stórt svæði, sundlaug og golfvöllur, auk Safnahúss Borgarfjarðar. Reykholt, sem er annálaður sögustaður með Snorralaug og Snorrastofu, er aðeins 21 km. frá Húsafelli. Margir sögufrægir staðir eru í nágrenni Húsafells, s.s. Draugaréttin á Húsafelli. Einnig er stutt í ýmsa staði sem vert er að skoða, t.d. Barnafossa, Surtshelli o. fl. Í Húsafelli er sundlaug, heitir pottar og vatnsrennibraut, 9 holu golfvöllur, minigolf, hestaleiga og varðeldur á laugardagskvöldum yfir sumartímann. Boðið er upp á heillandi ferðir á Langjökul og einnig er hægt að kaupa veiðileyfi á staðnum.
Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.husafell.is.
Athugið! Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu.
Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Bókanir laust" á slánni undir fjallgarðinum.

