Eiðar
Á Eiðum á SFR 4 hús. Um er að ræða hús nr. 5, 10, 11 og 12 og er hvert þeirra 54m² og samanstendur af anddyri, stofu, borðstofu, eldhúsi, 3 svefnherbergjum og baðherbergi. Svefnpláss er fyrir 6, þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 2 í kojum í hvoru barnaherbergi. Í húsinu eru 2 aukadýnur,barnaferðarúm og matarstóll. Nýbúið er að endurnýja veröndina við húsið. Hverju orlofshúsi fylgir bátur til afnota fyrir dvalargesti og er þeim heimil veiði í Eiðavatni. Björgunarvesti eru í húsunum.
Náttúrufegurð Fljótsdalshéraðs hefur lengi verið rómuð, Hallormsstaðaskógur, Skriðuklaustur, Lagarfljótið sem liðast eftir miðju Héraðinu og Snæfell í vestri og Dyrfjöll í austri eru útverðir byggðar á svæðinu. Margt er hægt að skoða í nánasta umhverfi og merktar gönguleiðir eru við Eiðavatn. Frá Eiðum eru 14 km að næsta þéttbýliskjarna, Egilsstöðum. Þar er sundlaug, matvöruverslanir og ýmis önnur þjónusta. Golfvöllur er í Fellabæ. Hægt er að fara í dagsferðir um Héraðið og niður á firði eða sigla um á Leginum.
Nánari upplýsingar um svæðið og þjónustuna má finna á www.east.is og á www.austurland.is.
Athugið! Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu.
Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi.
Leigutími allt árið, eitt dagleiguhús sumarið 2012.

