Arnarstapi
Orlofshúsið á Arnarstapa stendur við Sölvaslóð 7 og er 60 m2 að stærð með tveimur hjónaherbergjum og þriðja herbergið er með kojum. Á svefnlofti eru 4 dýnur og því svefnaðstaða fyrir 10. Við húsið er heitur pottur, útihúsgögn og kolagril. Almennar upplýsingar um landsvæðið má nálgast á www.vesturland.is.
Athugið! Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu.
Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Bókanir laust" á slánni undir fjallgarðinum.

