Akureyri Skálatún
Í parhúsinu að Skálatúni 35 á Akureyri á félagið góða, vel búna 4ra herbergja íbúð á efri hæð. Svefnstæði eru fyrir 5-6 manns. Í tveimur svefnherbergjanna eru fjögur rúm sem hægt er að setja saman, tvö og tvö, en í því þriðja er eitt 140 sm breitt rúm. Auk þess er barnaferðarúm í íbúðinni. Sængur og koddar eru fyrir 8 manns. Kolagrill og húsgögn eru á svölum. Ekki er heitur pottur í Skálatúni.
Íbúðin er staðsett í nýlegu hverfi rétt utan við miðbæ Akureyrar. Stutt er í alla þjónustu, svo sem sundlaug, verslanir, veitingastaði og banka.
Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.akureyri.is og www.travelnet.is.
Það sem fólk þarf alltaf að hafa með sér er: Rúmfatnaður, handklæði, viskustykki,tuskur til þrifa og wc-pappir. þetta gildir um öll hús SFR nema annað sé tekið fram.
Athugið! Allt dýrahald er stranglega bannað á staðnum. Umsjónarmanni er heimilt að vísa fólki með dýr í burtu.
Til að bóka hús smellirðu hér á BÓKUNARVEF. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Bókanir laust" á slánni undir fjallgarðinum.

