Orlofshús SFR á Íslandi

Opið er fyrir bókanir innanlands fjóra mánuði fram í tímann, að undanskildum páska- og sumarúthlutunartíma. Fyrsta virka dag í mánuði bætist við vefinn nýr mánuður og er opnað fyrir bókanir á orlofsvefnum kl 9:00. Páskaúthlutun er auglýst í janúar og sumarúthlutun í febrúar í SFR blaðinu.
- Suðurland: Vaðnes, Öndverðarnes, Brekkuskógur, Hólasetur-Biskupstungur, og Þúfukot í Reykholti (hundahús).
- Reykjavík: Sóltún 12 og Grandavegur 45.
- Vesturland: Munaðarnes, Húsafell, Skorradalur, Arnarstapi og Stykkishólmur.
- Vestfirðir: Súðavík og Bolungarvík.
- Norðurland: Blönduós, Hólar í Hjaltadal, Kjarnabyggð við Akureyri, Hamratún 26 Akureyri og Skálatún 35 Akureyri, Ólafsfjörður, Grenivík (hundahús), Aðaldalur í S-Þingeyjarsýslu og Illugastaðir í Fnjóskadal.
- Austurland: Eiðar, Eskifjörður og Djúpivogur.
Til að bóka hús smellirðu hér. Skráðu þig inn með kennitölu og netfangi. Veldu SFR og þá opnast þitt svæði. Þar geturðu skoðað hvað er laust með því að velja „Laust" á slánni fyrir ofan íslandskortið.

