Gjafabréf í flug
Icelandair 25.000 kr. gjafabréf í flugferð
Skilmálar: (Við mælum með að þú lesir þessa skilmála vandlega).
Gjafabréfið gildir sem greiðsla upp í fargjald (ekki fyrir skatta og önnur gjöld) í beinu áætlunarflugi til allra áfangastaða Icelandair. Ekki er hægt að nota þetta gjafabréf sem greiðslu upp í pakkaferð. Þetta gjafabréf er handhafa gjafabréf. Ef bókað er hjá sölumanni gilda reglur Icelandair um þjónustugjöld. Eftir útgáfu farseðils, gilda reglur fargjaldsins um breytingar og fleira. Gjafabréfin er hægt að kaupa á orlofsvef SFR www.sfr.is frá og með 17. mars næstkomandi. Á gjafabréfinu er númer sem þú notar þegar flugið er bókað og keypt.
Hver félagsmaður getur keypt 7 bréf. Ekki er hægt að skila gjafabréfi. Gildir til 18. mars 2012 - Gjafabréfið verður að nota innan þess tíma (bæði brottför og heimferð). Gjafabréfið kostar 20.000 en raunvirði þess er: 25.000 kr.
Iceland Express 20.000 kr. gjafabréf í flugferð
Skilmálar: (Við mælum með að þú lesir þessa skilmála vandlega).
Gjafabréfið gildir sem greiðsla í flug með Iceland Express í tvö ár frá útgáfudegi. Þegar þú notar þennan afsláttarmiða til að bóka skaltu fara á www.icelandexpress.is og fara í gegnum fyrstu þrjú bókunarskrefin eins og venjulega. Að bóka flug með afsláttarmiða er mjög svipað því að bóka flug með venjulegum hætti: Á þrepi 4 í bókunarferlinu velurðu einfaldlega flipann sem á stendur „gjafabréf" og skráir sextán stafa gjafabréfsnúmerið sem fram kemur á gjafabréfinu. Ef bókuð er ferð sem kostar minna en 20.000 kr. verður mismunurinn eftir á gjafakortsnúmerinu og hægt er að nýta hann síðar. Ef bókuð er ferð sem kostar meira en 20.000 kr. nýtist gjafabréfið sem greiðsla upp í verð þeirrar ferðar. Afganginn geturðu greitt með kreditkortinu þínu.
Ef þig vantar aðstoð? Hafðu þá samband við Iceland Express í síma 5500 600 eða farðu á www.icelandexpress.is/hjalp/gjafabref og lestu allt um gjafabréfin.
Gjafabréfin er hægt að kaupa á orlofsvef SFR www.sfr.is frá og með 17. mars næstkomandi. Hver félagsmaður getur keypt 7 bréf. Gildir til 18. mars 2012 - Gjafabréfið verður að nota innan þess tíma, bæði brottför og
heimferð. Gjafabréfið kostar 15.500 en raunvirði þess er 20.000 kr.



