Beint á leiðarkerfi vefsins

Gjafabréf í flug - Iceland Express og Icelandair

Icelandair 25.000 kr. gjafabréf í flugferðir

Skilmálar (lesið vandlega): Gjafabréfið gildir sem greiðsla fyrir flug í áætlungarflug til allra áfangastaða Icelandair og í pakkaferðir. Gjafabréfið er handhafa gjafabréf. Ef bókað er hjá sölumanni gilda reglur Icelandair um þjónustugjöld. Eftir útgáfu farseðils gilda reglur fargjaldsins um breytingar og fleira. Leiðbeiningar um notkun gjafabréfa eru á tenglinum: www.icelandair.is/offers-and-bookings/book-gift-certificate/instructions/

  • Gjafabréfin er hægt að kaupa á orlofsvef SFR www.sfr.is undir liðnum „ávísanir“.
  • Á gjafabréfinu er númer sem nota þarf þegar flug er bókað og keypt.
  • Hver félagsmaður getur keypt 7 bréf. Ekki er hægt að skila gjafabréfi.
  • Gildir í tvö ár frá útgáfudegi og verður að notast innan þess tíma (bæði brottför og heimferð).
  • Gjafabréfið kostar 20.000 en raunvirði þess er 25.000 kr.

Icex-Logo-400-RGBIceland Express 20.000 kr. gjafabréf í flugferð

Skilmálar (lesið vandlega): Gjafabréfið gildir sem greiðsla fyrir flug með Iceland Express. Þegar þú notar gjafabréfið við bókun flugs ferðu inn á www.icelandexpress.is og í gegnum fyrstu þrjú bókunarskrefin. Að bóka flug með gjafabréfi er mjög svipað og að bóka flug með venjulegum hætti. Í þrepi fjögur í bókunarferlinu velurðu flipann sem á stendur „gjafabréf“ og skráir þar sextán stafa númerið á gjafabréfinu.

Ef bókuð er ferð sem kostar minna en 28.000 kr. verður mismunurinn eftir á  gjafakortsnúmerinu og hægt að nýta hann síðar innan gildistímans. Ef bókuð er ferð sem kostar meira en 28.000 kr. nýtist gjafabréfið sem greiðsla upp í verð þeirrar ferðar og hægt er að greiða afganginn með kreditkorti. Ef frekari aðstoðar er þörf skal hafa samband við Iceland Express í síma 550 0600 og eins er hægt að fara inn á www.icelandexpress.is/hjalp/gjafabref og lesa nánar um gjafabréfin.

  • Gjafabréfin er hægt að kaupa á orlofsvef SFR www.sfr.is undir liðnum „ávísanir“.
  • Hver félagsmaður getur keypt 7 bréf.
  • Ekki er hægt að skila gjafabréfi.
  • Gildir í tvö ár frá útgáfudegi og verður að notast innan þess tíma (bæði brottför og heimferð).
  • Gjafabréfið kostar 18.000 en raunvirði þess er 28.000 kr.

WOW air 25.000 kr. gjafabréf í flugferð

Skilmálar (lesið vandlega): Gjafabréfið gildir sem greiðsla fyrir flug með WOW air. Farðu inn á www.wowair.is Bókaðu ferð með því að velja fjölda farþega, áfangastað og flugdagsetningar. Þegar kemur að greiðslu, veldu möguleikann „greiða með gjafabréfi“. Sláðu inn 16 stafa gjafabréfsnúmerið og ýttu á „greiða“. Ef bókuð er ferð sem kostar minna en 25.000 kr. verður mismunurinn eftir á gjafakortsnúmerinu og hægt að nýta hann síðar innan gildistímans. Ef bókuð er ferð sem kostar meira en 25.000 kr. nýtist gjafabréfið sem greiðsla upp í verð þeirrar ferðar og hægt er að greiða afganginn með kreditkorti. Ef frekari aðstoðar er þörf skal hafa samband við WOW air í síma 590 3000.

  • Gjafabréfin er hægt að kaupa á orlofsvef SFR www.sfr.is undir liðnum „ávísanir“.
  • Hver félagsmaður getur keypt 7 bréf.
  • Ekki er hægt að skila gjafabréfi.
  • Gildir í tvö ár frá útgáfudegi og verður að notast innan þess tíma (bæði brottför og heimferð).
  • Gjafabréfið kostar 18.000 en raunvirði þess er 25.000 kr.

Slóðin þín:

Orlofsvefur » Aðrir orlofsmöguleikar » Gjafabréf í flug