Morgunverðarfundir
SFR hefur reglulega boðið félagsmönnum á morgunverðar-/hádegisverðarfundi. Morgunfundir hefjast kl. 8.30 og standa til kl. 10 en hádegisfundirnir hefjast kl. 12 og standa til kl. 13.30. Áhugasamir geta sent skráningu á johanna@sfr.is.
Hugmyndin á bak við fundina er að auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Um 25 manns eru á hverjum fundi, 15-20 almennir félagsmenn, fulltrúar frá skrifstofu SFR og úr stjórn SFR. Rætt er um núverandi þjónustu og starfsemi SFR, þjónustu sem SFR býður upp á en er ekki mikið notuð og hugmyndir að nýjungum.
Morgunverðar-/hádegisverðarfundir SFR á vorönn 2010 verða:
- 14. jan. kl. 12-13:30, í Borgarnesi, Landnámssetur
- 19. jan. kl. 8:30-10, í Reykjavík, Grettisgötu 89, 1. hæð
- 21. jan. kl. 8:30-10, á Reykjanesi, Hótel Keflavík
- 26. jan. kl. 8:30-10, á Selfossi, Hótel Selfoss
- 28. jan. kl. 8:30-10, á Akureyri, Hótel Kea
- 9. feb. kl. 9-10:30, á Sauðárkróki, Kaffi Krók
- 9. mar. kl. 12-13:30, á Ísafirði, staðsetning kynnt síðar
- 16. mar. kl. 8:30-10, í Reykjavík, Grettisgötu 89, 1. hæð
- 17. mar. kl. 12-13:30, á Egilsstöðum, staðsetning kynnt síðar
- 8. apríl kl. 8:30-10, í Reykjavík, Grettisgötu 89, 1. hæð



