Beint á leiðarkerfi vefsins

Veikindaréttur RARIK ohf.

RARIK ohf.

Réttur til launa vegna veikinda og slysa

8.3.1 Laun í veikinda- og slysaforföllum á fyrsta ári.
Launagreiðslum til starfsmanna í veikindaforföllum þeirra hjá sama vinnuveitanda, skal á 1. ári haga þannig að tveir dagar greiðast fyrir hvern unninn mánuð.

8.3.2 Laun í veikinda- og slysatilfellum eftir eitt ár.
Launagreiðslu til starfsmanna í veikindaforföllum þeirra sem unnið hafa hjá RARIK ohf. í eitt ár eða meira skal haga þannig:
   - Eftir 1 árs starf hjá RARIK ohf: 2 mánuði á föstum launum á hverjum 12 mánuðum, 
   - eftir 5 ára starf hjá RARIK ohf: 4 mánuði á föstum launum á hverjum 12 mánuðum 
   - eftir 10 ára starf hjá RARIK ohf: 6 mánuði á föstum launum á hverjum 12 mánuðum.
Þó skal starfsmaður sem áunnið hefur sér réttindi til 4 eða 6 mánaða launagreiðslna í veikindaforföllum hjá síðasta vinnuveitanda og ræður sig hjá RARIK ohf. eiga rétt til launagreiðslna um eigi skemmri tíma en í 2 mánuði á hverjum 12 mánuðum.

Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.

8.4 Launahugtök
Föst laun
Með föstum launum er átt við dagvinnulaun auk fastrar reglubundinnar yfirvinnu. Yfirvinna í skilningi þessarar greinar telst föst og reglubundin hafi hún verið samfelld síðustu fjóra mánuði.
Dagvinnulaun
Með dagvinnulaunum er hér átt við föst laun fyrir vinnu á dagvinnutímabili, ásamt föstum aukagreiðslum öðrum en kostnaðargreiðslum.

Ákvæði gr. 8.2 - 8.4 hafa ekki áhrif á réttindi þeirra starfsmanna sem voru í starfi við upphaf starfsemi RARIK ohf. 1. ágúst 2006. Um rétt þeirra fer skv. lögum nr. 25/2006 um stofnun RARIK ohf. Starfsmenn halda því áunnum veikindadögum og rétti til frekari ávinnslu.

8.6 Starfshæfnisvottorð
8.6.1 Starfsmaður sem verið hefur óvinnufær vegna veikinda eða slysa samfellt í 1 mánuð eða lengur, skal leggja fram vottorð um starfshæfni, sé þess krafist. Krefjast má vottorðs trúnaðarlæknis RARIK ohf.

8.7 Skráning veikindadaga
8.7.1 Halda skal skrá yfir veikindadaga starfsmanns.

8.8 Forföll af óviðráðanlegum ástæðum
8.8.1 Starfsmaður á rétt á leyfi frá störfum þegar um óviðráðanlegar (force majeure) og brýnar fjölskylduástæður er að ræða vegna sjúkdóms eða slyss sem krefjast tafarlausrar nærveru starfsmanns.
Starfsmaður á ekki rétt á launum frá atvinnurekanda í framangreindum tilfellum, sbr. þó ákvæði gr. 8.9.1.

8.9 Veikindi barna yngri en 13 ára
8.9.1 Foreldri skal, eftir fyrsta starfsmánuð, heimilt að verja samtals 12 vinnudögum á hverju 12 mánaða tímabili, til aðhlynningar sjúkum börnum sínum undir 13 ára aldri, enda verði annarri umönnun ekki við komið. Foreldri skal halda dagvinnulaunum sínum, svo og vaktaálagi þar sem það á við.

Með foreldri í 1. mgr. er einnig átt við fósturforeldri eða forráðamann, sem er framfærandi barns og komi þá í stað foreldris.


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Veikindaréttur » Veikindaréttur rarik