Upplýsingar fyrir launagreiðendur
Allar greiðslur til SFR-stéttarfélags (félagsgjald og framlag atvinnurekenda í sjóði) eiga að fara í gegnum innheimtumiðstöð hjá Byr. Greiða má í einni upphæð en skilagrein þarf að berast með skiptingu milli sjóða.
Bankareikningurinn er 1175-05-760468
Kennitalan er 440169-0159
Skilagreinum má skila rafrænt á:
• SAL form sendist á skbibs@bsrb.is
• Fyrir skilagreinar á XML formi
https://dk.bsrb.is/bibs/skilagreinar.exe/soap/IMemberExpos
Í undantekningartilfellum er hægt að senda skilagreinar á Exel, Word eða Pdf formi.
Þá sendast þær á bsrb-skilagreinar@bsrb.is
Iðgjöld í sjóði - Ríki og sjálfseignastofnanir
Framlag launþega:
• Félagsgjald 1,1 % af öllum launum
Mótframlag launagreiðanda:
• Orlofsheimilasjóður 0,3 %
• Starfsmenntunarsjóður 0,22 %
• Þróunar-og símenntunarsj. 0,75 %
• Styrktar-og sjúkrasjóður (áður FOS) 0,75 %
Iðgjöld í sjóði - Fyrirtæki í ríkiseigu með aðild að SA og vegna einstaklingsaðildar að SFR
Framlag launþega:
• Félagsgjald 1,1 % af öllum launum
Framlag launagreiðanda:
• Orlofsheimilasjóður 0,3 %
• Starfsmenntunarsjóður 0,22 %
• Sjúkrasjóður 1,0 %
Netfang fyrir önnur samskipti sfr@sfr.is
Um áramót urðu þær breytingar að Fjölskyldu-og styrktarsjóður FOS var lagður niður og yfirtóku styrktar-og sjúkrasjóðir félaganna greiðslur fæðingarstyrks sem var á hendi FOS áður. Þá kom til framkvæmda hækkun á gjaldinu úr 0,55 % í 0,75 % sem samið var um í samkomulagi frá 2008.
Fréttabréf SFR
Á döfinni
Til félagsmanna
2. Mars 2010
Staðreyndir um hamingju - glærur
1. Mars 2010
Orlofsblað SFR í vinnslu
27. Janúar 2010
Komdu í kór!
Maí kórinn er kór BSRB félaga og er opinn öllum félögum í aðildarfélögum BSRB, vinum þeirra og vandamönnum. Kórfélagar hittast einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum kl. 20:15 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og syngja saman fjölbreytt lög undir styrkri stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Í hópnum er vant söngfólk og óvant, bæði karlar og konur. - Allir eru velkomnir.



















