Vinna á meðgöngu
Vernd mæðra og þungaðra kvenna
Í 11. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof er kveðið á um skyldur atvinnurekenda til að meta eða láta fara fram mat á áhættuþáttum varðandi vinnuaðstæður og skipulag vinnunnar með tilliti til öryggis og heilbrigðis þungaðrar konu, konu sem hefur nýlega alið barn eða konu sem er með barn á brjósti.
Þessar skyldur og framkvæmd þeirra eru síðan útfærðar frekar í reglugerð nr. 931/2000 um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.
Tilkynningaskylda þungaðra kvenna
Þær konur, sem eru starfsmenn og eru þungaðar, hafa alið barn eða hafa barn á brjósti verða að tilkynna atvinnurekandanum um þetta ásigkomulag sitt. Að öðrum kosti heyra þær ekki undir reglugerðina og er slík tilkynning því forsenda þess að þær geti notið þeirra réttinda sem reglugerðin veitir.
Tímabundin breyting á vinnuskilyrðum o.fl.
Þegar störf geta haft í för með sér hættu vegna mengunar, vinnuaðferða eða vinnuskilyrða, á atvinnurekandinn að meta eðli hættunnar fyrir þær konur sem falla undir reglugerðina. Hann á því að gera - eða láta gera - áhættumat. Leiði matið í ljós að hætta geti verið á ferðum ber atvinnurekanda að grípa til ráðstafana til að útiloka hættuna. Hann á einnig að kynna niðurstöður áhættumats fyrir konunni strax og þær liggja fyrir. En til hvaða ráðstafana á atvinnurekandinn að grípa ef hætta er fyrir hendi?
a) Fyrsta skref er að breyta tímabundið vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma konunnar.
b) Ef það er ekki hægt á að fela konunni önnur verkefni.
c) Ef það er heldur ekki hægt skal veita henni leyfi frá störfum.
Ekki má skylda þungaða konu til að vinna að næturlagi á meðgöngutímanum og jafnframt í allt að sex mánuði eftir barnsburð - ef það er nauðsynlegt af öryggis- og heilbrigðisástæðum og konan hefur staðfest það með læknisvottorði.
Konan, líkt og atvinnurekandi, getur leitað umsagnar Vinnueftirlitsins áður en ákvörðun er tekin um breytingu á vinnuskilyrðum, vinnutíma eða verkefnum.
Þær breytingar sem teljast nauðsynlegar á vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma, eða breytingar á verkefnum, skulu ekki hafa áhrif á launakjör starfsmanns til lækkunar eða önnur starfstengd réttindi. Með öðrum orðum heldur starfsmaður fullum launum og starfstengdum réttindum þrátt fyrir breytingarnar.
Leyfi frá störfum
Verði hvorki komið við breytingum á vinnuskilyrðum eða tilflutningi í önnur verkefni skal atvinnurekandi veita konunni leyfi frá störfum í svo langan tíma sem nauðsynlegt er til að vernda öryggi hennar og heilbrigði. Þunguð kona sem veitt er leyfi frá störfum af öryggis- eða heilsufarsástæðum öðlast rétt til greiðslu fæðingarorlofs úr fæðingarorlofssjóði samkvæmt þeim reglum sem um það gilda án þess að það skerði rétt til fæðingarorlofs að öðru leyti. Mikilvægt er að hafa í huga að réttindi þungaðra kvenna samkvæmt framansögðu byggja á því að atvinnurekanda hafi sannanlega verið tilkynnt um þungunina.
Réttur til mæðraskoðunar á launum
Í kjarasamningum eru ákvæði er mæla fyrir um rétt barnshafandi kvenna til nauðsynlegra fjarvista frá vinnu vegna mæðraskoðunar án frádráttar á föstum launum þurfi slík skoðun að fara fram í vinnutíma.
Greiðslur vegna leyfis frá störfum af öryggis- og heilbrigðisástæðum
Þunguð kona, sem þarf að fá leyfi frá störfum af öryggis- og heilbrigðisástæðum, á rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði eins og hún væri í fæðingarorlofi án þess að það skerði fæðingarorlofið eftir fæðingu. Skv. lögum nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof eru greidd mánaðarlega úr Fæðingarorlofssjóði 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs.
Breyting á vinnutíma, vinnuskilyrðum eða verkefnum hefur ekki áhrif á launakjör til lækkunar eða önnur starfstengd réttindi, sbr. áðurnefnd lög.

