Beint á leiðarkerfi vefsins

Veikindaréttur og réttur vegna slysa

Veikindaréttur fer eftir kjarasamningi SFR og viðkomandi samningsaðila

Veikindaréttur hjá Fríhöfninni ehf 
Veikindaréttur hjá Isavia ohf   
Veikindaréttur hjá Rarik og Matís ohf  

Hér að neðan á síðunni er fjallað um veikindarétt hjá ríki, sveitarfélögum og sjálfeignastofnunum

Veikindaréttur hjá ríki, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum

Veikindaréttur ræðst af þjónustualdri hjá ríkinu, sveitarfélögum og sjáfseignarstofnunum kostuðum af almennafé. Veikindaréttur starfsmanna sem vinna ríki, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum færist á milli stéttarfélaga.

Á fyrstu þremur mánuðum ráðningar er fyrri þjónustualdur hjá ríkinu, sveitarfélögum og sjáfseignarstofnunum ekki metinn nema viðkomandi starfsmaður hafi unnið samfellt hjá fyrri vinnuveienda í 12 mánuði eða meira.

Við mat á veikindarétti eru skoðaðir síðustu 12 mánuðir.
Dæmi: Starfsmaður sem hefur unnið í tvör ár hjá ríkinu veikist. Veikidnaréttur hans er 133 dagar en fyrir hálfu ári var starfsmaðurinn veikur í 20 daga. Starfsmaðurinn á því nú þegar hann veikist 133 - 20 = 113 daga eftir af veikindaréttisínum m.v. síðustu 12 mánuði.

Alilr dagar eru taldir í veikindum líka laugardagar og sunnudagar.


Réttur til launa vegna veikinda og slysa

Réttur starfsmanns (fast eða lausráðinn) sem ráðinn er í a.m.k. 2 mánuði:

Starfstími                  Veikindaréttur       Réttur v. slys/atvinnusj.
0- 3 mánuði í starfi             14 dagar      + 91 dagur v. slys/atvinnusj.
Næstu 3 mánuði                 35 dagar     + 91 dagur v. slys/atvinnusj.
Eftir 6 mánuði                    119 dagar    + 91 dagur v. slys/atvinnusj.
Eftir 1 ár                           133 dagar    + 91 dagur v. slys/atvinnusj.
Eftir 7 ár                           175 dagar    + 91 dagur v. slys/atvinnusj.
Eftir 12 ár                          273 dagar
Eftir 18 ár                          360 dagar

Í fyrstu viku veikinda fær starfsmaður allar fastar greiðslur.  Svo sem fyrir fasta yfirvinnu, vakta og óþægindaálag enda sé um að ræða fyrirfram ákveðinn vinnutíma.

Eftir fyrstu viku veikinda fær starfsmaður að auki fá greitt meðaltal af (breytilegri) yfirvinnu síðustu 12 mánuða.

Við veikindaréttinn bætist 91 dagur (sjá töflu) ef óvinnufærni starfar af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi.  Greidd eru dagvinnulaun á því tímabili.

Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.
Dæmi: Starfsmaður er tímabundið ráðinn á vinnustað frá 1 janúar til 1. september.  Starfsmaðurinn veikist í lok júlí og hefur áunnið sér 119 daga veikindarétt. Starfsmaðurinn fær greidd laun í veikindunum fram til 1. september en þá líkur ráðningu starfsmann og hann fer af launaskrá þótt hann hafi ekki tæmt veikindarétt sinn.


Um útreikning hlutaveikinda

Ekki er tekið fram í kjarasamningum hvernig skuli telja veikindadagana þegar heimildin um hlutaveikindi er nýtt en framkvæmdin hefur verið með þeim hætti að aðskilja talninguna líkt og um tvo starfsmenn væri að ræða sem gegna hvor sínu hlutastarfinu, annar er veikur en hinn frískur.

Dæmi: Dagvinnumaður í fullu starfi veikist í byrjun mars. Samkvæmt læknisráði og með leyfi forstöðumanns vinnur hann hálft starf og er að hálfu veikur. Veikindaréttur hans er 133 dagar og hann hefur aldrei verið forfallaður frá vinnu vegna veikinda. Talning veikindadaga og greiðsla launa er þá þannig:

 

  Starfandi hlutinn 50% Veiki hlutinn 50%  
Mán. Starfandi  Veikindadagar  Veikur  Veikindadagar  Greidd laun 
Mars 30 0 30 30 100%
Apríl 30 0 30 30 (60 samtals)  100%
Maí 31 0 31 31 (91 samtals)  100%
Júní 30 0 30 30 (121 samtals)  100%
Júlí 31 0 31 31 (152 samtals)  100% til 12. júlí, 50% eftir það 
Ágúst 31 0 31 31 (183 samtals)  50%
Samtals nýttir veikindadagar   0 183 dagar þar af 133 á launum  

Viðkomandi starfsmaður fær því greidd full laun í 133 daga (til og með 12. júlí), þrátt fyrir að skila 50% starfi á tímabilinu. Frá 12. júlí falla greiðslur veikindalauna niður, en launagreiðslur halda áfram fyrir þann hluta sem viðkomandi starfar.


Vottorð

Starfsmaður skal skila læknisvottorði ef þes er krafist og ef veikindin vara lengur en 5 daga.

Vinnuveitandi skal endurgreiða starfsmanni læknisvottorðið og viðtal vegna öflunar þess.

Eftir 1 mánaðar veikindi ber starfsmanni að framvísa starfshæfisvottorði. Starfsmaður má ekki hefja störf að nýju nema að framvísa starsfhæfisvottorði (heilsuvottorð).


Réttur vegna veikinda barna

Foreldri á rétt á að vera heima hjá veiku barni (yngra en 13 ára) í allt að 12 daga á ári.

Réttur foreldris miðast við almanaksár.


Orlof og veikindi, hlutaveikindi

Starfsmaður sem verið hefur í veikindum, hlutaveikindum samkvæmt leyfi stofnunar og ætlar í sumarfrí
• Telst að fullu vera í orlofi eða
• Telst að fullu vera í veikindum og fer þá ekki í orlof


Langvarandi veikindi

Starfsmaður á rétt á að halda starfi sínu launalaust vegna veikinda í jafn langan tíma og veikindaréttur hans er.

Eftir að rétti til launa í veikinum lýkur getur starfsmaður sótt um sjúkradagpeninga hjá SFR.
Sjúkradagpeningar eru 80% af meðaltalslaunum

Starfstími                 Réttur til sjúkradagpeninga SFR
Starfstími 0 - 1 ár      30 dagar
Starfstími yfir 1 ár     90 dagar
Starfstími yfir 18 ár   45 dagar (ef viðkomandi á engan rétt annars staðar).

Sjúkradagpeningar greiðast ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.

Lausnarlaun
Starfsmaður á rétt á að halda starfi sínu launalaust jafn lengi og veikindaréttur hans er, að þeim tíma liðnum getur vinnuveitandi gert kröfu um starfslok.  Ef ljóst er að starfsmaðurinn kemur ekki til með að vera meira úti á vinnyumarkaði er hægt að fara fram á lausnarlaun. 

Lausnarlaun eru starfslokalaun í þrjá mánuði (ATH þetta á aðeins við þegar um endanleg starfslok er að ræða).

Andlát starfsmanns. Vegna látins starfsmanns eru greidd þriggja mánaða laun til maka ef viðkomandi hefur ekki tæmt veikindarétt sinn.


Veikindaréttur tímavinnufólks og eftirlaunaþega í tímavinnu

Starfsmaður í tímavinnu skal halda launum í veikindum sem hér segir:

Starfstími                  Veikindaréttur       Réttur v. slys/atvinnusj.
Á 1. mánuði í starfi               2 dagar         + 91 dagur v. slys/atvinnusj.
Á 2. mánuði í starfi               4 dagar         + 91 dagur v. slys/atvinnusj.
Á 3. mánuði í starfi               6 dagar         + 91 dagur v. slys/atvinnusj.
Eftir 3 mánuði í starfi            14 dagar        + 91 dagur v. slys/atvinnusj.
Eftir 6 mánuði í starfi            30 dagar        + 91 dagur v. slys/atvinnusj.

Á fyrstu viku veikinda fær starfsmaður allar fastar greiðslur.  Svo sem fyrir fasta yfirvinnu, vakta og óþægindaálag enda sé um að ræða fyrirfram ákveðinn vinnutíma.

Eftir fyrstu viku veikinda fær starfsmaður að auki fá greitt meðaltal af (breytilegri) yfirvinnu síðustu 12 mánuða.

Við veikindaréttinn bætist 91 dagur (sjá töflu) ef óvinnufærni starfar af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi.  Greidd eru dagvinnulaun á því tímabili.

Laun eftirlaunaþega í tímavinnu skal vera 1 mánuður á hverjum 12 mánuðum. Laun í veikindum skal miða við meðaltal dagvinnulauna síðustu 3 mánaða fyrir veikindin.

Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.


Lítaaðgerðir, glasa- og tæknifrjóvganir, áfengismeðferð (valkvæðar aðgerðir)

Í vinnurétti er túlkunin sú að fjarvistir vegna valkæðna aðgerða flokkist ekki undir veikindi eins og þau eru skilgreind í kjarasamningum.

Starfsmenn sem eru frá vinnu vegna slíkra aðgerða geta því átt von á að þurfa að nota orlof sitt eða óska eftir launalausu fríi þann tíma sem þeir eru frá vinnu.

Það er nokkuð misjafnt hvernig stofnanir koma til móts við starfsmenn í aðstæðum sem þessum en margar stofnanir hafa sett sér reglur varðandi þessi mál. 


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Spurningar og svör um kjaramál » Veikindaréttur