Uppsögn á launalið, yfirvinnu, akstri
Uppsögn á fastri yfirvinnu.
Ef stofnun hyggst segja upp fastri yfirvinnu þá þarf að gera það með formlegum hætti. Senda á starfsmanni bréf þar sem ástæðan fyrir breytingunni er tilgreind.
Segja þarf yfirvinnunni upp með sama fyrirvara og réttur starfsmanns til uppsagnarfrests er, oftast 3 mánuðir en uppsagnarfresturinn getur verið lengri hjá starfsmönnum 55 ára og eldri sem áunnið hafa sér lengdan uppsagnarfrest.
Uppsögn á launaflokkum.
Stofnun má ekki segja upp launaflokkaröðun starfsmanna. Um launaflokkaröðun er samið í stofnanasamningi og stofnanasamningur er hluti af kjarasamningi.
Yfirvinnubann.
Stofnun hefur heimild til að setja á yfirvinnubann. Slíkt bann þarf þó að tilkynna með hæfilegum fyrirvara. Þannig að það taki ekki gildi fyrr en á næsta yfirvinnutímabili eftir tilkynninguna.
Ef þörf er á því að starfsmaður vinni yfirvinnu á stofnun þar sem yfirvinnubann ríkir. Þarf starfsmaður að ganga úr skugga, um áður en hann vinnur yfirvinnuna, að hann hafi heimild fyrir yfirvinnunni hjá yfirmanni og að hann fái yfirvinnuna greidda.
Yfirvinnu breytt í frí.
Samkvæmt gr. 2.3.8 í kjarasamningi er heimilt að safna allt að 5 frídögum á ári vegna yfirvinnu með samkomulagi við vinnuveitanda.
Starfsmaður fær þá 8 tíma frí fyrir 8 tíma yfirvinnu og yfirvinnuálagið er greitt við næstu reglulegu útborgun, og er það 44,44% af tímakaupi í yfirvinnu.
ATH að stofnanir hafa ekki heimild til þess að fara fram á það við starfsmenn að fyrir hvern unnin yfirvinnutíma fái starfsmenn 1 tíma í frí og enga aðra greiðslu. Það er brot á kjarasamningi.
Uppsögn á aksturssamningum.
Uppsagnarfrestur aksturssamninga er einn mánuður og miðast við mánaðarmót.

