Beint á leiðarkerfi vefsins

Um vinnutíma


Vinnutími

Vinnuskylda starfsmanns í fullu starfi er 40 stundir á viku nema um annað sé sérstaklega samið.

Dagvinna er unnin á tímabilinu 8 til 17 virka daga.

Heimilt er að semja um sveigjanlegan vinnutíma frá 7-18 á virkum dögum með aðkomu samningsaðila.

Yfirvinna er sú vinna sem fer fram utan daglegs vinnutíma eða vaktar og vinna sem unnin umfram vikulega vinnutímaskyldu.  


Virkur vinnutími

Hlutfall Vinnutími Kaffitímar Matarhlé Virkur vinnutími
100% 08:00 00:35 00:30 07:25
90% 07:12 00:31 00:30 06:40
80% 06:24 00:28 00:30 05:56
70% 05:36 00:24 00:30 05:11
60% 04:48 00:21 00:30 04:27
50% 04:00 00:17 00:30 03:42
40% 03:12 00:14 00:30 02:58
30% 02:24 00:10 00:30 02:13

  


Vinnutími vaktavinnufólks

Vaktavinna er vinna sem skipt er niður í vaktir eftir ákveðnu kerfi. Vaktir skulu að jafnaði vera 4-10 klst.
Vaktskrá ber að leggja fram með mánaðarfyrirvara.

Mánaðarlegur vinnutími vaktavinnufólks í fullu starfi er 173,3 stundir og árleg vinnuskilda vaktavinnumanns í fullu starfi er 2080 tímar.

Starfsfólk í vaktavinnu hefur ekki sérstakan matar og kafftíma en fá 25 mínútur í yfirvinnu ofan á hverja vakt. (Ákvæðið á við félagsmenn SFR í starfi hjá ríkinu, Reykjavíkurborg og Sveitarfélögunum)

Á aukavakt og í yfirvinnu fá vaktavinnustarfsmenn greiddar 12 mínútur ofan á hvern unnin klukkutíma.


Útkall

Fyrir ríkistarfsmenn gildir að útkall er 3 klst. frá 8-24 virka daga og 4 klst. á næturnar, sérstökum frídögum og um helgar frá 17 á föstudögum.

Ef útkalli lýkur innan þriggja tíma frá lokum daglegrar vinnu skal greiða tíman frá lokum daglegrar vinnu til loka útkalls.

Ef daglegur vinnutími hefst innan þriggja klst. frá útkalli skal greiða fyrri tíma frá upphafi útkalls fram til þess tíma er daglegur vinnutími hefst.

Hjá sveitarfélögunum gildir að útkall er 4 klst. allan sólarhringinn


Hvíldartími

Vinnutíma skal haga þannig að á hverju 24 stunda tímabili fái starfsmaður a.m.k. 11 klst. samfellda hvíld.

Frávik frá hvíldartímaákvæðinu er heimil á skipulögðum vaktaskiptum en þá má stytta lágmarkshvíld starfsmanna í allt að 8 klst. t.d. þegar skipt er af morgunvakt yfir á næturvakt. Miðað er við að ekki reyni á þetta oftar en einu sinni í viku.

Einnig er heimild fyrir því að skerða 11 tíma hvíldina í að hámarki 8 tíma hvíld við sérstakar aðstæður. Þær eru

Björgun verðmæta
Almannaheill krefst þess
Til að halda uppi nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu


Frítökuréttur

Ef 11 tíma lágmarkshvíld starfsmans er skert getur komið til frítökuréttar.

Dæmi:
Starfsmaður með almennan vinnutíma frá 8-16 vinnur yfirvinnu til kl. 23 að kvöldi á að samkvæmt reglum um hvíldartíma ekki að mæta til vinnu fyrr en kl. 10 morgunin eftir en fær laun frá kl 8. Ef starfsmaðurinn er beðinn um að mæta kl. 8 þá skapast frítökuréttur sem er 1 1/2 klst. fyrir hverja klukkustund sem 11 tíma hvíldin skerðist. Í þessu dæmi vantar tvo tíma upp á 11 tíma lágmarkshvíldina og því fær starfsmaðurinn 3 klst. í frítökurétt.


Starfsmannafundir

SFR telur það mjög mikilvægt fyrir vinnustaði að haldnir séu starfsmannafundir. Það eykur upplýsingaflæði og stillir saman starfsmannahópin. 

Ef t.d. starfsmaður í hlutastarfi sem fer heim kl 12:00 og á á mæta á fund kl. 15:30 þá ber að greiða honum yfirvinnu fyrir fundartímann.

Starfsmaður sem er kallaður sérstaklega á starfsmannafund utan síns hefðbundna vinnutíma skal að lágmarki fá greidda 3 klst.

Heimilt er samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins að skylda starfsmenn í yfirvinnu í allt að 1/5 af vikulegri vinnuskyldu.

Hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélögum gildir að lágmarksgreiðsla fyrir starfsmannafund  sem haldin er utan dagvinnutíma er 2 klst. enda hafi verið boðað til fundarins með a.m.k mánaðarfyrirvara


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Spurningar og svör um kjaramál » um vinnutíma