Beint á leiðarkerfi vefsins

Um vetrarfrí eða bætingu

Helgidagafrí (vetrarfrí) eða greiðsluregla (bæting)

Helgidagafrí (88 klst. vetrarfrí m.v. fullt starf) er regla sem miðast við að vaktavinnufólk fái svipaða styttingu á vinnuskyldu ár hvert og dagvinnufólk.

Starfsfólk getur valið hvort það vill helgidagafrí (88 klst. vetrarfrí m.v. fullt starf) eða greiðslureglu (bætingu). Óski starfsmaður þess að breyta vali á milli helgidagafrís eða greiðslureglu þarf að tilkynna það til stofnunar fyrir 1. desember ár hvert.

Starfsmaður sem velur helgidagafrí (88 klst. vetrarfrí) fær:
   55% vaktaálag ef hann vinnur á sérstökum frídegi
   90% vaktaálag ef hann vinnur á stórhátíð
   Engar greiðslur fyrir sérstaka frídaga eða stórhátíðardaga sem lenda á vaktafríi
   Sérstakir frídagar og stórhátíðardagar sem lenda á vetrarfrístíma lengja ekki vetrarfríið

Starfsmaður sem velur greiðslureglu (bætingu) fær:
   Yfirvinnukaup ef hann vinnur á sérstökum frídegi
   Stórhátíðarkaup ef hann vinnur á stórhátíð
   8 klst. yfirvinnukaup (bæting) m.v. fullt starf fyrir sérstaka frídaga eða 
   stórhátíðardaga sem bera upp á virkum degi og lenda á vaktafríi. Laugardagur fyrir 
   páska er einnig bættur.
   Ef starfsmaður er í orlofi og á orlofstímanum lenda sérstakir frídagar eða 
   stórhátíðardagar á virkum degi skal sérstaki frídagurinn bættur eða orlofið lengt.

Reglur um töku helgidagafrís (vetrarfrís)


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Spurningar og svör um kjaramál » Um vetrarfrí eða bætingu