Um starfslýsignar
Starfslýsingar
Starfslýsing er stutt lýsing á starfi starfsmanns. Í starfslýsingum kemur fram staða starfs í skipuriti, ábyrgð, skyldur og helstu verkefni starfsmanns. Það er því hægt að hafa starfslýsingar til grundvallar við launaröðun. Starfslýsingar koma þó sjaldan beint við sögu við kjarasamningagerð.
Starfslýsing er unnin af vinnuveitanda oft með aðkomu starfsmanns. Yfirleitt eru starfslýsingar á nafni viðkomandi stafsmanns því það getur verið blæmunur á starfi og verkefnum tveggja starfsmanna þótt þeir séu að öðru leiti í sambærilegum störfum. Starfslýsingar flestra taka breytingum frá ári til árs og geta nýst vel í starfsmannasamtölum.
Starfslýsingar þurfa að innihalda ákveðin sveigjanleika. Það er ekki farsælt ef verkefnalistinn er nákvæmlega niðurnjörvaður hvorki fyrir starfsmann né stofnunina. Hins vegar vísar orðalag eins og „annað að beiðni yfirmanns" til verkefna er hæfa viðkomandi starfi. Með öðrum orðum skrifstofumaður er ekki beðinn um að ræsta. Húsvörður ekki beðinn um að færa bókhald og svo frv.

