Um matar og kaffitíma
Dagvinnufólk
Vinnuvika dagvinnumanna í fullu starfi er 40 stundir.
Matartími 30 mínútur skal vera á tímabilinu 11:30-13:30 og telst hann ekki til vinnutíma. Matartími er ólaunaður.
Kaffitímar eru 2 samtals 35 mínútur. Venjulega 15 mínútur fyrir hádegi og 20 mínútur eftir hádegi. Kaffitímar teljast til vinnutíma og eru launaðir.
Virkur vinnutími á dag er því 8 klst. að frádregnum 35 mínútur í kaffi eða 7 klst. og 25 mínútur (7,4167).
Heimilt er að lengja, stytta eða fella niður bæði matar- og kaffitíma með samkomulagi fyrirsvarsmanna stofnunar og einfalds meirihluta þeirra starfsmanna er málið varðar.
Taka skal tillit til kaffitíma við útreikning á starfshlutfalli hlutavinnufólks. Starfsmaður sem ráðin er t.d. til vinnu frá kl. 12:00-16:00 án hádegishlés 5 daga vikunnar á vinnustað þar sem báðum kaffitímum er sleppt, vinnur þannig 54% af fullu starfi eða 4 klst. af 7,4167 klst.
Hér má sjá nokkur dæmi um upphaf og endi vinnudags eftir því hvort að kaffi- eða matartímum hefur verið sleppt.
| Virkur vinnutími | Kaffitími f. hádegi | Matartími | Kaffitími e. hádegi | Ytri mörk vinnudags |
| 7 st. 25 mín. | sleppt | sleppt | sleppt | kl. 08:00-15:25 |
| 7 st. 25 mín. | sleppt | 1/2 stund | sleppt | kl. 08:00-15:55 |
| 7 st. 25 mín. | sleppt | 1 stund | sleppt | kl. 08:00-16:25 |
| 7 st. 25 mín. | sleppt | sleppt | 20 mín. | kl. 08:00-15:45 |
| 7 st. 25 mín. | sleppt | 1/2 stund | 20 mín. | kl. 08:00-16:15 |
| 7 st. 25 mín. | sleppt | 1 stund | 20 mín. | kl. 08:00-16:45 |
| 7 st. 25 mín. | 15 mín. | sleppt | sleppt | kl. 08:00-15:40 |
| 7 st. 25 mín. | 15 mín. | 1/2 stund | sleppt | kl. 08:00-16:10 |
| 7 st. 25 mín. | 15 mín. | 1 stund | sleppt | kl. 08:00-16:40 |
| 7 st. 25 mín. | 15 mín. | sleppt | 20 mín. | kl. 08:00-16:00 |
| 7 st. 25 mín. | 15 mín. | 1/2 stund | 20 mín. | kl. 08:00-16:30 |
| 7 st. 25 mín. | 15 mín. | 1 stund | 20 mín. | kl. 08:00-17:00 |
Matartímar í yfirvinnu teljast til vinnutíma og eru greiddir. Matartímar í yfirvinnu skulu vera kl. 19-20 að kvöldi, 03-04 að nóttu og frá 11:30 til 13:30 á frídögum
Kaffitímar í yfirvinnu skulu vera 21:00-21:20, 24:00-00.20, 05:40-06:00 og 07:45-08:00. Á sérstökum frídögum eru kaffitímar 2 samtals 35 mínútur á tímabilinu frá 8:00 - 17:00
Ef starfsmenn vinna í matar og kaffitímum í yfirvinnu skal sá tími greiðast sem viðbót við vinnutíma.
Meðaltalsverð fæðis
Meðaltalsverð fæðis í mötuneyti stjórnarráðsins er frá 1. júní 2010 kr. 520
Fæðispeningar
Gildir fyrir ríkisstarfsmenn. Starfsmenn sem hafa ekki aðgang að matstofu en ættu að hafa það skulu fá fæðispeninga sem nema 380 kr. (m.v. maí 2011) fyrir hvern vinnuskyldudag enda séu þá uppfyllt neðantalin skilyrði:
1. Starfsmeður sé a.m.k. í 50% starfi
2. Starfsmaður hafi vinnuskyldu á föstum vinnustað frá kl. 11:00 - 14:00 að frádregnu matarhléi.
3. Matarhlé sé aðeins 1/2 klst.
Fæðispeningar skulu breytast á þriggja mánaða fresti í samræmi við breytingu matvöruliðar í vísitölu neysluverðs með vísitölu maímánaðar 2011 sem grunnvísitölu (140,7 stig).
Fæðispeningar greiðast fyrir hvern dag sem mætt er til vinnu. Vegna þess að vinnudagafjöldi er mismunandi frá mánuði til mánaðar, er starfsmönnum greitt skv. mánaðarlegum meðalfjölda vinnuskyldudaga til einföldunar og 27 daga meðalorlof dregið frá.
Því skal því greiða starfsmönnum sem vinna allt árið 18,6 einingar fæðispeninga á mánuði.
Hjá sumarafleysingamönnum dragast aðeins frá þeir sérstöku frídagar sem ber upp á virkan dag á ráðningartíma þeirra.
Fæðispeningar falla niður í veikindum, fæðingarorlofi, orlofi og öðrum fjarvistum þar sem um er að ræða kostnaðargreiðslu en ekki launagreiðslu.
Fæðisfé vaktavinnumanna hjá ríkinu
Frá 1. mars 2012 kemur inn ný svohljóðandi grein.
Starfsmaður á vakt þegar matstofa vinnustaðar er ekki opin skal fá það bætt með fæðispeningum sem nema 380 kr. enda sé vinnusýlda starfsmanns a.m.k. 1 klst. fyrir og eftir matartíma sem eru kl. 19-20 að kvöldi, 03-04 að nóttu og frá 11:30-13:30 um helgar og á sérstökum frídögum.
Vaktavinnufólk
Vaktavinnumenn hafa ekki sérstakan matar- og kaffitíma. Þess í stað er bætt 25 mínútum á hverja vakt á yfirvinnukaupi.
Þegar unnin er yfirvinna fá starfsmenn greiddar 12 mínútur til viðbótar við hverja unna klst. vegna matar og kaffitíma.
Hjá ríkinu gildir fram til 1. mars 2012 að starfsmönnum í hlutastarfi eru bættar 25 mínúturnar sem dagvinnulaun (hækkun starfshlutfalls). Eftir 1. mars 2012 verða 25 mínúturnar greiddar á yfirvinnukaupi.

