Beint á leiðarkerfi vefsins

Kaup, launahækkanir og launaútreikningar


Hækkun launa/ launatöflu ríkisstarfsmanna skv kjarasamningi SFR og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sem gildir frá 1. maí 2011 til 31 mars 2014.

Launakjör þeira SFR félagsmanna er sem heyra undir kjarasamning SFR og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs ráðast af miðlægum kjarasamningi SFR annars vegar og stofnanasamningi hins vegar.

Miðlægur kjarasamningur fjallar um atriði er varða kjör allra starfsmanna SFR s.s. rétt til orlofs, hækkanir á launatöflu, hvernig yfirvinnukaup er reiknað út, matar- og kaffitíma o.fl.

Grunnhækkanir kjarasamningsins á samningstímanum eru:

1.6.2011: 4,25% eða 12.000 kr. að lágmarki.
1.3.2012: 3,50% eða 11.000 kr. að lágmarki.
1.3.2013: 3,25% eða 11.000 kr. að lágmarki.

Stofnanasamningur
fjallar um grunnröðun starfa til launa og viðbótarforsendur eins og starfsreynslu, símenntun og annað. Stofnanasamningur sem SFR gerir við einstaka stofnun er ætlaður annars vegar til að tryggja þróun launa fyrir félagsmenn SFR og hins vegar að stuðla að launakerfi sem tekur mið af þörfum og verkefnum stofnunar og starfsmanna hennar. Samstarfsnefnd á stofnuninni annast gerð stofnanasamningsins.

 

Í stofnanasamningum kemur fram hvernig mismunandi störfum er raðað í launatöflu og hvernig persónubundnir þættir sem starfsmaður býr yfir, s.s. menntun og reynsla eru metin að auki. Stofnanasamningar eru endurskoðaðir reglulega eftir samkomulagi.


Um útreikning launa


Mánaðarlaun eru skv. launaflokki og þrepi í launatöflu SFR
Tímakaup í dagvinnu er 0,615% af mánaðarlaunum
Tímakaup í yfirvinnu er 1,0385% af mánaðarlaunum

Stórhátíðarkaup er 1,375% af mánaðarlaunum

Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi og er:

33,33% kl. 17:00 - 24:00 mánudaga - fimmtudaga
55,00% kl. 17:00 - 24:00 föstudaga
55,00% kl. 00:00 - 08:00 mánudaga - föstudaga
55,00% kl. 00:00 - 24:00 laugard., sunnud. og sérstaka frídaga
90,00% kl. 00:00 - 24:00 stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3.

Brot úr klst. greiðist hlutfallslega.


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Spurningar og svör um kjaramál » Um kaup