Beint á leiðarkerfi vefsins

Ráðningarkjör og launasamningar

Fastlaunasamningur

Er samningur um tiltekin föst heildarlaun þar sem að baki liggur mat á umfangi starfsins og þeim verkefnum sem starfsmaðurinn þarf að jafnaði að standa skil á til að sinna starfinu á fullnægjandi hátt.

Við gerð fastlaunasamnings þarf að gæta þess að tryggt sé að starfsmaður njóti ávallt grunnkjara og umsaminna launahækkana samkvæmt kjarasamningi.

Fastlaunasamningar mega ekki ganga gegn neinum þeim réttindum starfsmanna sem varin eru í kjarasamningi svo sem ákvæðum um hvíldartíma.

Í fastlaunasamningi þarf að koma fram við hvaða daglega vinnutíma er miðað ásamt skýrum mörkum á yfirvinnu. Í samningnum þarf jafnframt að koma fram að ef vinna fer upp fyrir þau mörk ber að greiða starfsmanni yfirvinnulaun fyrir þá vinnu sérstaklega.

Fastlaunasamningar eru gjarnan ætlaðir stjórnendum og millistjórnendum sem vinna töluverða yfirvinnu sem erfitt getur verið að halda utan um t.d. vinna heima.

Fastlaunasamningur sem rétt er að staðið getur verið hvatning fyrir starfsmann að hagræða vinnu sinni þannig að hann skili starfi sínu á skemmri tíma og njóti þess í óbreyttum launum.

Þegar samið er um föst laun getur gleymst að setja þak á yfirvinnu í samninginn.
Illa skilgreindur fastlaunasamningur getur snúist í andstöðu sína. Hætta er á að vinnutími starfsmanna verði óhóflegur, hvíldarákvæði ekki virt og að starfsmaður sé látinn vinna langt umfram það sem lagt er til grundvallar án þess að hann fái laun fyrir.

Fastlaunasamningar eru yfirleitt ekki gerðir fyrir vaktavinnufólk.  Þar sem vaktavinnufólk missir vaktaálag sitt við slíkan samning.  Þá getur orðið flókið að halda utan um það ef t.d. samstarfsmaður veikis og starfsmaður tekur aukavakt og svo frv.  Starfsmaður á fastlaunasamningi í þessari stöðu getur komist í þá stöðu að vinna meira en hann fær greitt fyrir.


Jafnlaunasamningur

Er samningur um jafna greiðslu launa fyrir ákveðið tímabil. Vinnustundir eru áætlaðar fyrirfram gjarnan fyrir eitt ár í senn og ætlast er til að starfsmaður skili umsömdum vinnustundum.

Í jafnlaunasamningi felast almennt ekki viðbótarlaun og í þeim er ákvæði um endurskoðun t.d. einu sinni á ári þegar vinnumagn síðasta tímabils liggur fyrir.


Atriði sem ber að hafa sérstaklega í huga þegar fastlaunasamningur, jafnlaunasamningur er gerður

Vinnutímamagn
Starfsmaður þarf að gæta að því að hámark sé á þeirri yfirvinnu sem ætlast er til að hann vinni skv. fastlaunasamningi, jafnlaunasamningi

Hvíldartími
Gæta þarf þess að ákvæði um hvíldartíma séu ekki brotin. Starfsmaður á rétt á vikulegum hvíldardegi og 35 tíma samfelldri hvíld einu sinni í viku. Einnig ber að hafa í huga að ef starfsmaður fær ekki 11 tíma hvíld á hverju 24 klst. tímabili myndast frítökuréttur

Vaktavinnufólk
Þarf að huga að því að í stað matar og kaffitíma bætast 25 mínútur við hverja unna vakt og 12 mínútur bætast við hvern klukkutíma i yfirvinnu. Einnig að vaktavinnufólk hefur vaktaálag á laun, mismikið eftir því hvaða dag og hvenær sólarhrings unnið er.

Bakvaktir og útköll
Starfsmenn sem ekki hafa fastlaunasamning fá bakvaktarálag ef stjórnendur fara fram á það við starfsmann að þeir séu í viðbragðsstöðu til að sinna útkalli . Sömuleiðis er greitt hið minnsta 3 tíma yfirvinnukaup fyrir útkall.

Matar og kaffitímar í yfirvinnu
Matar og kaffitímar í yfirvinnu teljast til vinnutíma. Matar og kaffitímar í yfirvinnu sem unnir eru greiðast sem viðbót við yfirvinnutíma.

Persónuuppbót
Starfsmaður sem hefur fastlaunasamning á rétt á að fá greidda persónuuppbót í desember nema sérstaklega sé tilgreint í fastlaunasamninginum að persónuuppbót í desember sé innifalin í föstu laununum.

Orlofsuppbót
Starfsmaður sem hefur fastlaunasamning á rétt á að fá greidda orlofsuppbót í júní nema sérstaklega sé tilgreint í fastlaunasamninginum að orlofsuppbót sé innifalin í föstu laununum.

Yfirvinnu breytt í frí
Heimilt er með samkomulagi við vinnuveitanda að safna allt að 5 frídögum á ári vegna yfirvinnu. Yfirvinnutímar koma til uppsöfnunar frís og mismunurinn á yfirvinnu og dagvinnu sem er 44% er greiddur út. Starfsmenn með fastlaunasamning, jafnlaunasamning geta orðið af þessum rétti.


Yfirvinnuhugtök

Föst yfirvinna
Föst yfirvinna er þegar starfsmenn fá greidda fasta yfirvinnutíma t.d. 15 yfirvinnutíma í hverjum mánuði óháð því hvort yfirvinnan er unnin eða ekki. Mjög misjafnt er hvor stjórnendur ætlast til þess að starfsmenn vinni upp í þessa greiddu yfirvinnu eða ekki.

Breytileg yfirvinna
Breytileg yfirvinna er þegar starfsmenn fá greitt fyrir unna yfirvinnu. Vinni starfsmaður enga yfirvinnu einn mánuðinn fær hann enga yfirvinnu greidda og vinni hann 5 tíma þann næsta fær hann þá greidda í næstu útborgun á eftir og svo frv.

Sumir starfsmenn hafa fasta yfirvinnu og fá einnig greidda breytilega yfirvinnu ef yfirvinna fer fram úr ákveðnu viðmiði.

Óunnin yfirvinna
Hugtakið "óunnin yfirvinna" er gjarnan notað í daglegu máli. Þó ber að athuga að það er ekki til nein launategund sem heitir óunnin yfirvinna. Hugtakið er oft notað ef stjórnendur ætlast ekki til þess að starfsmenn vinni upp í þá föstu yfirvinnu sem þeir fá greidda.


Samsetning launa

Heildarlaun geta verið samsett úr þremur þáttum:
1. Kaup og kjör sem samið er um í kjarasamningi
2. Launaröðun sem samið hefur verið um í stofnanasamningi
3. Viðbótarlaun sem ekki eru tilgreind í kjarasamningi eða stofnanasamningi, oft í formi yfirvinnulauna eða fríðinda.

 


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Spurningar og svör um kjaramál » Ráðningarkjör, fastlaunasamningar jafnlaunasamningar