Beint á leiðarkerfi vefsins

Um ráðningarform og uppsagnarfrest


Ótímabundinn ráðning (fastráðinn)

Vinnuveitandi skal ávallt leitast við að ráða starfsmann ótímabundið.

Starfsmaður með ótímabundinn ráðningarsamning telst fastráðinn eftir þriggja mánaða reynslutíma.

Uppsagnarfrestur á reynslutíma er einn mánuður.  Eftir það er gagnkvæmur uppsagnarfrestur þrír mánuðir.

Uppsagnarfrestur eftir 10 ára samfellt starf er:
   4 mánuðir ef starfsmaður er orðin 55 ára
   5 mánuðir ef starfsmaður er orðin 60 ára
   6 mánuðir ef starfsmaður er orðin 63 ára


Tímabundin ráðning (lausráðinn)

Starfsmaður með tímabundna ráðningu er með ráðningarsamning þar sem lok ráðningar eru tiltekin með lokadagsetningu eða ráðningu lýkur við lok tiltekins verkefnis.

o Gagnkvæmur uppsagnarfrestur tímabundið ráðinna er 1 mánuður
o Tímabundin ráðning fellur úr gildi án uppsagnar í lok ráðningartímans

Starfsmaður með tímabundna ráðningu skal njóta sama réttar og sömu kjara og sambærilegur starfsmaður með ótímabundna ráðningu.

Vinnuveitandi skal ávallt leitast við að ráða starfsmann ótímabundið en heimilt er að endurnýja eða framlengja tímabundin ráðningasamning í allt að tvö ár samfellt. Að sama skapi er óheimilt að endurnýja tímabundin ráðningarsamning þannig að hann vari samfellt lengur en tvö ár.

Starfsmaður sem verið hefur í starfi í samfellt tvö ár á því að hafa ótímabundin ráðningarsamning (fastráðningu).

Nýr tímabundinn ráðningarsamningur er gildur ef hann er framlendur eða nýr er gerður innan sex vikna frá því sá eldri rann út.

Ef vinnuveitandi heldur starfsmanni áfram í starfi og lætur hjá líða að ganga frá nýjum tímabundnum ráðningarsamningi innan sex vikna frá því fyrri samningur rann út telst komin á ótímabundin ráðningarsamningur (fastráðning).

Vinnuveitandi skal veita starfsmanni með tímabundna ráðningu upplýsingar um störf sem losna innan fyrirtækisins til að hann hafi sömu tækifæri til að vera ráðin ótímabundið og aðrir starfsmenn.


Ráðinn í tímavinnu

Samkvæmt kjarasamningi SFR og fjármálaráðherra f.h. ríkisins er heimilt er að greiða starfsmönnum tímavinnukaup í eftirfarandi tilvikum:
   1. Nemendum við störf í námshléum
   2. Starfsmönnum sem ráðnir eru til skamms tíma vegna sérstakra árvissra álagstíma
       ýmissa ríkisstofnana, þó ekki lengur en í tvo mánuði.
   3. Starfsmönnum sem ráðnir eru til að vinna að sérhæfðum afmörkuðum verkefnum.
   4. Starfsmönnum sem starfa óreglubundið um lengri eða skemmri tíma, þó aðeins í 
       algjörum undantekningartilvikum.
   5. Lífeyrisþegum sem vinna hluta úr starfi.

Þetta ákvæði veitir heimild til greiðslu tímakaups í undantekningartilvikum og ber að túlka sem slíkt.

Það er því ekki við hæfi að ráða starfsfólk á tímavinnu ef um er að ræða reglubundin vinnutíma eða reglubundna vaktavinnu. 

LSR hefur heimilað tímavinnufólki greiðslu í sjóðinn en almennt greiðir tímavinnufólk lífeyri í söfnunarsjóð lífeyrisréttinda en ekki LSR. Vinnuveitandi greiðir þá 8% mótframlag í stað 11,5% í LSR. 

Veikindaréttur tímavinnufólks er:
   Á fyrsta mánuði í starfi         2 dagar
   Á 2. mánuði í starfi              4 dagar
   Á 3. mánuði í starfi              6 dagar
   Eftir 3 mánuði í starfi          14 dagar
   Eftir 6 mánuði í starfi          30 dagar

Gagnkvæmur uppsagnarfrestur tímavinnufólks er ein vika á fyrstu þremur mánuðunum í starfi. Eftir það er gagnkvæmur uppsagnarfrestur tímavinnufólks 1 mánuður.


Ástæður uppsagna

Ástæður uppsagnar þurfa að vera að vera málefnalegar og lögmætar.

Málefnalegar ástæður geta verið breytingar í rekstri t.d. fækkun starfsmanna, eða vegna aldurs en segja skal starfsmanni upp stöfum við 70 ára aldur.

Brot í starfi getur varðað áminningu og uppsögn
Ef starfsmaður sýnt vanrækslu eða brotið af sér í starfi í samræmi við 21. málsgrein laga nr. 70/1966 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins skal veita starfsmanni áminningu og gefa honum tækifæri til að bæta ráð sitt áður en honum er sagt upp störfum.

Ef starfsmaður er sekur um refsiverða háttvísi skv. 68 grein almennra hengingarlaga má víka starfsmanni fyrirvaralaust úr starfi.

 


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Spurningar og svör um kjaramál » Ráðningarform og uppsagnarfrestur