Beint á leiðarkerfi vefsins

Ofgreidd laun

Endurgreiðsla vegna ofgreiddra launa

Þegar laun eru ofgreidd vegna misskilnings launagreiðanda um staðreyndir, verða þau yfirleitt ekki endurheimt úr hendi grandlauss launþega. Hafi launþegi aftur á móti mátt vita um ofgreiðsluna, getur launagreiðandi átt rétt til endurheimtu þess fjár, sem ofgreitt var. Það sama á við, hafi launagreiðandi ofgreitt laun vegna rangra upplýsinga frá launþega eða annarra sambærilegra tilvika. Vegna eðlis launagreiðslna og þess aðstöðumunar, sem almennt er á milli launagreiðanda og launþega við uppgjör og útreikninga launa, verður þó að gera þá kröfu, að ekki verði verulegur dráttur á endurheimtu ofgreiddra launa. Verður að ganga út frá því að verulegt tómlæti launagreiðanda í þessu efni leiði til brottfalls endurkröfu hans. Það þarf hins vegar að meta hvert tilvik fyrir sig.

Einnig er talið óheimilt að endurheimta ofgreidd laun:

Ef ofgreiðslur hafa tíðkast um langt skeið og endurheimtan hefur það alvarleg áhrif á fjárhag viðtakanda að framfærslugeta hans verði skert á óforsvaranlegan hátt.  Þetta á ekki við ef viðtakandi vissi eða mátti vita að hann átti ekki rétt á hinum ofgreiddu launum.

Ef um uppgjör launa er að ræða s.s. við starfslok, en þær greiðslur öðrum fremur eru til þess fallnar að vekja viðtakenda það traust að honum beri greiðslurnar með réttu. Viðtakandi treystir því að um endanlegt uppgjör sé að ræða sem hann þurfi ekki að eiga á hættu að verði hróflað við síðar.  Það traust hans byggist á því að greiðandi hefur yfirleitt yfirburðastöðu til að meta hvað sé rétt greiðsla, hann annast almennt útreikningana.  Viðtakandi hefur sjaldnast möguleika á að setja sig nákvæmlega inn í þá til að gera sér ljóst að hann eigi ekki rétt til greiðslunnar.

Ef ofgreiðsla stafar af því að vafi leikur á um túlkun laga- eða samningsákvæðis, en launagreiðslur hafa þó verið inntar af hendi fyrirvaralaust, verða þær greiðslur ekki endurheimtar.

 


--------------------------------------------------------------------------------


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Spurningar og svör um kjaramál » Ofgreidd laun