Lokun vaktavinnustofnana um hátíðir
Það getur komið fyrir að vaktavinnustað sé lokað um jól, páska eða aðrar hátíðir. Ástæða þessa er oftast sú að heimilismenn, þjónustuþegar verða fjarverandi um hátíðirnar.
Þegar þetta gerist þarf að tilkynna starfsfólki um lokunina með a.m.k. mánaðar fyrirvara og setja þarf lokunina inn í vaktskrá. Þeim starfsmönnum sem annars hefðu átt að vinna um hátíðirnar er gefinn kostur á því að taka út orlofsdaga, bakvaktafrí, vetrarfrí eða annað ótekið orlof.
Ekki er hægt að ætlast til þess að starfsfólk vinni af sér lokunardagana með meiri vinnu á undan eða eftir fríin.
Þeir sem eru á bætingarreglu eiga að fá þá hátíðardaga sem bera upp á virkum degi og/eða laugardag fyrir páska bættan samkvæmt reglunni.

