Launaviðtal
Á vinnumarkaði hefur tíðkast að starfsmenn fara í starfsmannasamtöl og launaviðtöl þó vissulega sé misjafnt eftir vinnustöðum hvort og hvernig þetta er framkvæmt. Hér verður fjallað um launaviðtalið og hvernig best er að undirbúa sig fyrir slíkt viðtal og hvaða kröfur er hægt að gera svo eitthvað sé nefnt.
Undibúningur launaviðtals!
Mikilvægt er að undirbúa sig vel og taka tillit til allra þátta sem geta skipt máli. Gott er að skoða niðurstöður launakönnunar SFR og bera launin þín saman við sambærilega hópa, sjá leiðbeiningar hér. Farðu yfir verkefnin þín og hvort þau hafi breyst, hvort álag hafi aukist. Vertu búinn að hugsa hvað þú ætlar að leggja áherslu á að biðja um. Punktaðu hjá þér minnisatriði og taktu með í viðtalið. Hafðu trú á sjálfum þér - ég get, ætla og skal. Sjá nánar leiðbeiningar fyrir launaviðtal.
Hvað er hægt að semja um í launaviðtali?
Í launaviðtali má tala um fleira en bein laun. Aðstæður eru misjafnar og gott getur verið að leggja mat á umhverfið og vega og meta hvort að nú sé lag að óska t.d. eftir sveigjanlegum vinnutíma eða styttri vinnuviku. Hér eru nefnd nokkur dæmi um atriði sem mætti semja um:
- Bensínstyrk
- Fatastyrk
- Fjölbreytni í starfi
- Líkamsræktarstyrk
- Lengra orlof á launum
- Lengra fæðingarorlof
- Námsstyrk
- Peningabónus
- Stöðuhækkun
- Styttri vinnuviku
- Starfshlutfall
- Sveigjanlegan vinnutíma
- Vinnuaðstöðu
- Yfirvinnu
Mundu að æfingin skapar meistarann. Þó þú fáir nei, þá getur það verið eitt skref í átt að jái. Skráðu hjá þér að loknu viðtali hvað fór vel og hvað hefði mátt betur fara. Byrjaðu að undirbúa þig fyrir næsta viðtal með því að huga að frammistöðu þinni og halda t.d. vinnudagbók.

