Launin mín
Hvað ræður laununum mínum?
Samið er um launaröðun hvers starfs í stofnansamningi á milli SFR og viðkomandi stofnunar. Stofnanasamningar byggja á grunnlaunum fyrir starf annars vegar og persónubundnum launaframgangi hins vegar. Laun umfram grunnröðun stofnanasamnings grundvallast á samkomulagi starfsmanns og vinnuveitanda og koma fram í ráðningarsamningi viðkomandi starfsmanns. Sjá stofnanasamninga
Hvernig ber ég laun mín saman við laun annarra í launakönnunum?
Það er gagnlegt að fylgjast með því hver meðallaunin eru fyrir sambærilegt starf og við sinnum. Best er að notast við upplýsingar úr launakönnun SFR
- Byrjaðu á því að smella hér til að komast inn á nýjustu launakönnunina.
- Síðan þarft þú að átta þig á samanburðarhópnum. Það er að segja hvaða starfsheiti þú villt skoða og í hvaða atvinnugrein. Hér er að finna töflur með upplýsingum um meðallaun frá febrúar 2011.

