Beint á leiðarkerfi vefsins

Áfengismeðferð

Á starfsmaður rétt á launum meðan hann er í áfengismeðferð 

Það hvort starfsmaður fái greidd laun á meðan á áfengismeðferð stendur er samkomulagsatriði á milli launþega og stofnunar. Oftast hafa stofnanir ákveðnar reglur sem þær setja sjálfar varðandi þessi mál. T.d. að starfsmaður hafi unnið fyrir stofnunina í ákveðin tíma og eins hvort stofnunin greiði meðferð einu sinni eða oftar eða jafnvel alls ekki.

Rétturinn til launa vegna áfengismeðferðar er ekki varinn í veikindakafla kjarasamninga. Það er vegna þess að skv. vinnurétti er ekki litið á ávengismeðferð sem veikindi. Þar af leiðandi er það ekki skylda vinnuveitanda að greiða laun á meðan stm. er í áfengismeðferð.


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Spurningar og svör um kjaramál » Laun í áfengismeðferð