Beint á leiðarkerfi vefsins

Frí í stað yfirvinnu

Það er atvinnurekanda að ákveða hvort hann kaupir yfirvinnu af sínum starfsmanni.

Vinni starfsmaður yfirvinnu að beiðni atvinnurekanda skal greiða honum samkvæmt ákvæðum kjarasamninga. Samningar milli starfsmanna og atvinnurekanda eru ólöglegir ef samið er um lægri kjör en ákvæði er um í kjarasamningum.

Yfirvinnu breytt í frí

Samkvæmt gr. 2.3.8 í kjarasamningi er heimilt að safna frídögum vegna yfirvinnu.

Frí á móti yfirvinnu
Heimilt er starfsmanni, með samkomulagi við vinnuveitanda að safna allt að 5 frídögum á ári vegna yfirvinnu, á þann hátt að yfirvinnutímar komi til uppsöfnunar en yfirvinnuálagið er greitt við næstu reglulegu útborgun.

• Starfsmaður fær þá 8 tíma frí fyrir 8 tíma yfirvinnu og yfirvinnuálagið er greitt við næstu reglulegu útborgun, og er það 44,44% af tímakaupi í yfirvinnu.

Ef starfsmaður tekur út einn tíma í dagvinnu á móti einum tíma í yfirvinnu, hlutfallið 1:1, þá skal atvinnurekandi undantekningarlaust greiða út yfirvinnuálagið!

• Ef samkomulag er um á milli aðila má einnig veita 1,8 klst. í frí fyrir hvern yfirvinnutíma og greiðsla yfirvinnuálags fellur þá niður.

Ef launin eru t.d. kr. 350.000  er dagvinnutíminn kr. 2.018,92 og yfirvinnutíminn
kr. 3.634,75.  1 yfirvinnutími er því jafnt og 1,8 klst. í dagvinnu eða  1 klukkustund og 48 mínútur í dagvinnu
.


Gæta verður þess þegar samið er um frí á móti yfirvinnu að vinnuveitandi geti veitt starfsmönnum það frí sem þannig safnast innan árs svo ekki komi til uppsöfnunar á óteknu fríi.

Samningar við starfsmenn sem fela í sér aðrar og minni greiðslur fyrir yfirvinnu skv. ofansögðu eru undirboð á kjarasamningi og því óheimilir.


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Spurningar og svör um kjaramál » Frí í stað yfirvinnu
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti