Ferðalög með vistmönnum
Ferðalög með vistmönnum, þjónustuþegum
Hjá ríkisstarfsmönnum og sjálfseignastofnunum gildir að:
• Þegar starfsmenn vistheimila ferðast með og annast vistmenn á ferðalögum, skal hver ferðadagur reiknaður allt að 12 klst.
• Vinnutími umfram reglubundna vinnuskyldu greiðist sem yfirvinna.
• Vegna næturgistingar á ferðalögum með vistmönnum greiðast að auki 2 klst.
Samkvæmt þessari grein á því að greiða á fyrir alla þá daga í ferðalaginu sem starfsmaður annast þjónustuþega.
Dæmi: Þjónustuþegi fer í 4 daga ferðalag erlendis, frá mánudagsmorgni til seinniparts fimmtudags, í fylgd starfsmanns. Starfsmaðurinn á samkvæmt vaktskrá að vinna 8 tíma kvöldvaktir á mánudag og þriðjudag og 8 tíma dagvakt á fimmtudag. Starfsmaðurinn fær því greitt fyrir þessar vaktir eins og hann hafi verið í vinnunni á sambýlinu. Starfsmaðurinn gistir með þjónustuþega og fær 2 klst. greiddar fyrir hverja nótt. Hann á ekki frídag á ferðalaginu og því fær hann einnig greitt fyrir miðvikudaginn í yfirvinnu.
Starfsmaður hefur uppfyllt vinnuskyldu sína samkvæmt hefðbundinni vaktskrá og á því ekki að „borga" seinna fyrir þær vaktir sem hann átti á meðan á ferð stóð.
Athugið að ef starfsmenn eiga frídag(a) á ferðalaginu og geta varið frídeginum að eigin vilja fjarri þjónustuþega telst frídagurinn ekki til vinnutíma.
Mikilvægt er að ganga frá þessum atriðum við yfirmenn áður en lagt er af stað í ferðalagið.
Einnig viljum við benda ykkur á að hafa samband við skrifstofu SFR og fá leiðbeiningar ef einhver vafi er á framkvæmdinni.
Hjá Reykjavíkurborg gildir að:
Þegar starfsmaður annast skjólstæðinga á ferðalögum, skal hver vinnudagur reiknaður allt að 12 klst. Að auki ber að greiða 4 klst. vegna eftirlitsstarfa með skjólstæðingum vegna næturgistingar á ferðastað. Ef starfsmaður er einn á ferð með skjólstæðingi og annast hann einn skal greitt fyrir þá sólarhringa alla. Ef starfsmaður fer í ferðalag (með skjólstæðingi) að beiðni yfirmanns á frídegi sínum skal hann bættur með öðrum frídegi eða greiðslu yfirvinnu.
Hjá sveitarfélögunum gildir að:
Þegar starfsmenn ferðast með og annast nemendur og/eða skjólstæðinga á ferðalögum skal hver ferðadagur reiknast 12 klst., 8 dagvinnutímar og 4 yfirvinnutímar. Vegna næturgistingar á ferðalögum með nemendur og/eða skjólstæðinga greiðast auk þess 4 klst. í yfirvinnu.
Ef starfsmaður er einn á ferð með skjólstæðingi og annast hann einn skal greitt fyrir þá sólarhringa alla. Ef starfsmaður fer í ferðalag (með skjólstæðingi) að beiðni yfirmanns á frídegi sínum skal hann bættur með öðrum frídegi eða greiðslu yfirvinnu.



