Beint á leiðarkerfi vefsins

Fatapeningar - fæðispeningar

Fatapeningar

Fatapeningar eru greiddir á heilbrigðisstofnunum og sambýlum fyrir fatlaða þar sem þess er krafist, vegna sérstakra meðferðarúrræða að starfsmaður noti eigin fatnað í stað vinnuslopps eða álíka hlífðarfatnaðar.

Fatapeningar hjá ríki og sjálfseignastofnunum (fyrir fullt starf)

Maí 2011 3.800 kr. m.v. fatalið vísutölu maí 2011, 169,6 stig (grunnur 2008)
September 2011    3.636 kr. m.v. fatalið vísutölu ágúst 2011, 162,3 stig (grunnur 2008)
Desember 2011 3.838 kr. m.v. fatalið vísutölu nóvember 2011, 171,3 stig (grunnur 2008)
     
     

Upphæðin tekur breytingum á þriggja mánaða fresti til samræmis við breytingu á fatalið (031) í vísitölu neysluverðs með vísitölu maí 2011 sem grunnvísitölu (169,6 stig miðað við undivísitölur frá 2008).

Fatapeningar hjá Reykjavíkurborg
2011 kr. 1.763 á mánuði m.v. fullt starf
1 jan. 2012 kr. 3.800 á mánuði m.v. fullt starf
Upphæðin er uppfærð árlega þann 1 janúar hjá RVK til samræmis við vísitölu

Fatapeningar hjá Sveitarfélögunum  (krónutala fyrir hverja unna klst.)

Ágúst  2011 19,46 kr. m.v. fatalið vísutölu júlí 2011, 129,6 stig (grunnur 1992)
Nóvember 2011 21,77 kr. m.v. fatalið vísutölu október 2011, 145,0 stig (grunnur 1992)
     
     
     

Upphæðin tekur breytingum á þriggja mánaða fresti  til samræmis við breytingu á fatalið (031) í vísitölu neysluverðs með vísitölu janúar 2011 sem grunnvísitölu (129,03 stig).

Ákvæði þessi ná einvörðungu til starfsmanna í umönnun með fötluðum.  Það nær ekki til starfsmanna á skrifstofum og starfsmanna sem annast ráðgjöf við fatlaða.


Fæðispeningar dagvinnumenn

Starfsmenn sem hafa ekki aðgang að matstofu en ættu að hafa það skulu fá fæðispeninga:

Hjá ríkinu 
Júní 2011                380 kr.    m.v. matar og drykkjarvörulið vísutölu maí 2011, 140,7 stig (grunnur 2008) 
September 2011   390 kr.    m.v. matar og drykkjarvörulið vísutölu ágúst 2011, 144,5 stig (grunnur 2008)
Desember 2011    390 kr.    m.v. matar og drykkjarvörulið vísutölu nóvember 2011, 144,4 stig (grunnur 2008)

Hjá Reykjavíkurborg
Júlí 2011                531,9 kr.  m.v. matar og drykkjarvörulið vísitölu júní 2011, 190,4 stig (grunnur 1992)
Október  2011       543,0 kr. m.v. matar og drykkjarvörulið vísitölu september 2011, 194,4 stig (grunnur 1992)
Janúar 2012          548,6 kr. m.v. matar og drykkjarvörulið vísitölu desember 2011, 196,4 stig (grunnur 1992)

Hjá Sveitarfélögunum
Maí 2011                336,9 kr.   m.v. matar og drykkjarvörulið vísitölu apríl 2011, 186,6 stig (grunnur 1992)
Ágúst 2011            336,9 kr.   m.v. matar og drykkjarvörulið vísitölu júlí 2011, 191,7 stig (grunnur 1992)
Nóvember 2011    336,9 kr.   m.v. matar og drykkjarvörulið vísitölu október 2011, 194,1 stig (grunnur 1992)
     
enda séu þá uppfyllt neðantalin skilyrði:

1. Starfsmeður sé a.m.k. í 50% starfi
2. Starfsmaður hafi vinnuskyldu á föstum vinnustað frá kl. 11:00 - 14:00 að frádregnu matarhléi.
3. Matarhlé sé aðeins 1/2 klst.

Fæðispeningar miðast við vísitölu og uppfærast á 3 mánaða fresti

Því skal því greiða starfsmönnum sem vinna allt árið 18,6 einingar fæðispeninga á mánuði.

Hjá sumarafleysingamönnum dragast aðeins frá þeir sérstöku frídagar sem ber upp á virkan dag á ráðningartíma þeirra.

Fæðispeningar falla niður í veikindum, fæðingarorlofi, orlofi og öðrum fjarvistum þar sem um er að ræða kostnaðargreiðslu en ekki launagreiðslu.


Fæðispeningar vaktavinnufólk

Hjá ríki og sjálfseignastofnunum
Frá 1. mars 2012 gildir að starfsmaður á vakt þegar matstofa vinnustaðar er ekki opin skal fá það bætt með fæðispeningum sem nema 380 kr. enda sé vinnuskylda starfsmanns a.m.k. 1 klst. fyrir og eftir kvöldmatartíma kl 19-20, matartíma um nætur kl. 03-04 eða á frídögum kl. 11:30-13:30.

Hjá Reykjavíkurborg

Starfsmenn sem ekki njóta mataraðstöðu skulu fá það bætt með 524,32 kr. fyrir hvern vinnuskyldudag að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
   Starfsmaður sé í amk 50% starfi
   Starfsmaður hafi vinnuskyldu frá 11-14 eða 18-20:30 
   Matarhlé er 1/2 klst.

Hjá sveitarfélögum

Starfsmenn í vaktavinnu sem ekki njóta mataraðstöðu skulu fá fæðispeninga 336,94 fyrir hvern vinnuskyldudag enda séu þá uppfyllt neðantalin skilyrði:
   Starfsmaður sé í amk 50% starfi
   Starfsmaður hafi vinnuskyldu frá 11-14 eða 18-20 að frádregnu matarhléi.
Starfsmenn á næturvöktum greiða ekki fyrir fæði.


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Spurningar og svör um kjaramál » Fatapeningar - Fæðispeningar
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti