Samstarfsnefndir
Fulltrúar samstarfsnefnda, vegna endurskoðunar stofnanasamninga 2006, hafa verið skipaðir á flestum stofnunum þar sem við á. Listi yfir fulltrúa og stofnanir má finna hér.
Í kjarasamningi á milli fjármálaráðherra og SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu sem undirritaður var 9. mars 2005 segir í kafla 11:
11.5 Skipan og hlutverk samstarfsnefnda
11.5.1
Hjá þeim stofnunum ríkisins sem fara með framkvæmd kjarasamninga í umboði fjármálaráðherra, skal komið á sjálfstæðum samstarfsnefndum, sem skipaðar eru allt að 3 fulltrúum frá hvorum aðila, þ.e. stéttarfélagi/starfsmönnum og stofnun og 3 til vara. Að öllu jöfnu skal trúnaðarmaður á vinnustað vera í forsvari í nefndinni af hálfu SFR. Forstöðumaður tilnefnir fulltrúa stofnunar.Samstarfsnefnd hafi m.a. það hlutverk að fjalla um forsendur starfaflokkunar, röðun einstakra starfa í launaflokka og koma á sáttum í ágreiningsmálum sem rísa kunna út af samningi þessum. Eins skal nefndin fjalla um röðun starfa skv. 25. gr. laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
11.5.2
Hjá þeim stofnunum sem ekki fara með framkvæmd kjarasamninga skulu samningsaðilar með sama hætti tilnefna allt að 3 fulltrúa í samstarfsnefnd og 3 til vara. Fjársýsla ríkisins annast, samkvæmt framsali, þátt fjármálaráðherra fyrir þær stofnanir sem ekki fara með framkvæmd kjarasamninga.
Fjármálaráðuneytið og SFR hafa tilnefnt fulltrúa í samstarfsnefnd og erindi til hennar skal senda á skrifstofu SFR.
Einnig eiga sjálfseignastofnanir og þær stofnanir sem fjármálaráðherra hefur veitt umboð til framkvæmdar kjarasamningi (sbr. gr. 11.3) rétt á að skipa samstarfsnefndir.



















