Beint á leiðarkerfi vefsins

Sjálfseignastofnanir

Neðangreindur samningur er grunnsamningur sem gerður er við allar sjálfseignastofnanir þar sem SFR félagar starfa. Hægt er að fá ljósrit sent af samningi við hverja stofnun með því að senda póst á gudrun@sfr.is  

S A M N I N G U R

Milli _______________________________________
og
SFR stéttarfélags

1. gr. Samningur þessi tekur til þeirra starfsmanna ofangreinds vinnustaðar sem eru félagar í SFR  og eru þeir nefndir félagsmenn í samningi þessum.

2. gr. Um kjör félagsmanna sem samningur þessi tekur til, skal fara eftir kjarasamningi SFR við fjármálaráðuneytið á hverjum tíma ásamt fylgiskjölum og bókunum, nema öðruvísi sé érstaklega um samið.

3. gr. Réttindi og skyldur félagsmanna skulu að öllu leyti vera hliðstæð ákvæðum laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins svo og stórnsýslulögum nr. 37/1993 þ.m.t form- og efnisreglur sem stofnun ber að virða áður en gripið er til uppsagnar, að undangenginni áminningu ef við á, sbr. 21. og 44. gr. starfsmannalaga, svo og skyldu stofnunar til að rökstyðja uppsögn og áminningu.

4. gr. Við ráðningu félagsmanna er skylt að nota til þess gerðan ráðningarsamning,   sem báðir aðilar viðurkenna. Í samningnum skal tilgreina laun, vinnutíma, starfsaldur, lífeyrissjóð og önnur starfskjör, svo og um stéttarfélag.

5.gr. Félagsmenn  eiga rétt á að vera í Lifeyrissjóði ríkisstarfsmanna (LSR) og greiða 4% iðgjald til sjóðsins. Vinnuveitandinn greiðir mótframlag til sjóðsins samkvæmt reglum hans á hverjum tíma.

6. gr. Segi annar hvor aðili samningnum upp skal það gert með a.m.k þriggja mánaða fyrirvara og gildir um þá uppsögn ákvæði 12. greinar laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.

7. gr. Um kjarasamninga og vinnudeilur skal farið eftir ákvæðum laga nr.94/1986.

8. gr. Félagsmenn sem notið hafa betri réttinda en samningur þessi gerir ráð fyrir, skulu halda þeim óskertum.


Reykjavík


Samþykkt f.h.                                                            Samþykkt f.h. ......
SFR

 


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Kjarasamningar » Sjálfseignastofnanir
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti