Beint á leiðarkerfi vefsins

Fæðingarorlof

Fæðingarstyrkur SFR félaga

Fæðingarstyrkur er greiddur úr Styrktar-og sjúkrasjóði SFR. Styrkurinn er jafnhár til kvenna og karla en hliðsjón er höfð af starfshlutfalli. Fullur styrkur er kr. 200.000,- vegna hvers barns og miðast við að foreldri hafi stundað 100% starf síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns /barna.
  • Foreldrar sem eru félagsmenn í SFR eiga rétt á styrk séu þeir aðilar að sjóðnum og uppfylla skilyrði um sjóðsaðild, karlar jafnt sem konur.
  • Séu báðir foreldrar í SFR, sækja þau um hvort í sínu lagi.
  • Umsækjandi þarf að vera að lágmarki í 25% starfshlutfalli til að eiga rétt á styrk. 
  • Styrkurinn lækkar í hlutfalli við skert starfshlutfall. 
  • Um ættleiðingar gilda sömu reglur og um venjulega fæðingu væri að ræða. 
  • Sé um að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu er greiddur út hálfur fæðingarstyrkur. 
  • Hægt er að nýta styrkinn upp að 18 mánaða aldri barns/barna.

Fæðingarstyrkur er veittur til foreldris gegn framvísun fæðingarvottorðs og staðfestingu atvinnurekanda um að umsækjandi  sé með ráðningu þar sem fram koma upplýsingar um starfshlutfall hans s.l. 6 mánuði fyrir fæðingu barns/barna.  Rafræn umsókn.

Fæðingarorlofssjóður á Hvammstanga
Um áramótin 2006-2007 fluttist Fæðingarorlofssjóður frá Tryggingastofnun ríkisins til Vinnumálastofnunar. Umsækjendum í fæðingarorlofi er bent á að snúa sér til Fæðingarorlofssjóðs Strandgötu 1, 530 Hvammstanga með umsóknir sínar. Vefsíðan er www.faedingarorlof.is. Símanúmer Fæðingarorlofssjóðs er 582 4840 og fax er 582 4850. Skattkort af höfuðborgarsvæðinu á að skila á Engjateig 11, 105 Reykjavík en öll önnur gögn skal senda á Hvammstanga.

Ýmsar upplýsingar um fæðingarorlof og umsóknareyðublöð:
Munið að setja X-ið!
Þegar sótt er um úr Fæðingarorlofssjóði þarf að fylla út umsókn hjá Vinnumálastofnun. Á umsóknareyðublaðinu eru reitir þar sem umsækjandi er beðinn um að setja x þar sem það á við, m.a. hvort viðkomandi óski eftir því að stéttarfélagsgjöld verði dregin frá greiðslum úr fæðingarorlofssjóði. Þeir sem merkja x við þann reit teljast félagsmenn í viðkomandi stéttarfélagi.

Réttarstaða hinna sem ekki kjósa að krossa í þennan reit er hins vegar önnur. Þeir teljast ekki félagsmenn á meðan á fæðingarorlofi stendur og missa því rétt úr styrktar- og sjúkrasjóði, orlofssjóði og starfsmenntunarsjóði. Með öðrum orðum, til að halda sjóðsréttindum í fæðingarorlofi er nauðsynlegt að greiða stéttarfélagsgjald. Sé það greitt greiðir fjölskyldu- og styrktarsjóður (FOS) mótframlag til sjóða BSRB og sjóðfélagi heldur öllum sínum réttindum og heldur áfram að vinna sér inn réttindi meðan á fæðingarorlofi stendur. Engin lagaheimild er fyrir Vinnumálastofnun að draga stéttarfélagsgjöld óumbeðið af greiðslum í fæðingarorlofi. Því er óhjákvæmilegt að hafa spurningu á eyðublaðinu vegna fæðingarorlofsgreiðslu um hvort umsækjandi vilji vera áfram í sínu félagi og þar með greiða til þess félagsgjöld. Er því nauðsynlegt að minna félagsmenn á það að standa vörð um réttindi sín og félagsaðild og krossa í viðeigandi reit.

Ný lög um fæðingar- og foreldraorlof tóku gildi 1. janúar 2005
Helstu breytingar tóka til skilyrða fyrir greiðslum, lágmarkstíma, viðmiðunartímabils, hámarks, foreldris sem ekki er á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabilinu, ef um andlát foreldris er að ræða og leiðréttinga á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Hér að neðan er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um fæðingarorlof:

Umsóknareyðublaðið fyrir Fæðingarorlofssjóð og tilkynningareyðublöðin til atvinnurekanda má nálgast á www.faedingarorlof.is.


Slóðin þín:

Kaup og kjör » Fæðingarorlof
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti