Atvinnuleitendur
Þar sem atvinnuleitendum innan félagsins hefur fjölgað töluvert á síðustu misserum hefur verið komið upp upplýsingasíðu fyrir félagsmenn hér á vefnum. Félagið hvetur atvinnuleitendur og þá sem missa vinnu til þess að huga að réttindum sínum og huga að því að skrá sig í stéttarfélag.
Réttindi atvinnuleitenda innan SFR stéttarfélags:
Upplýsingar og ráðgjöf
-
Aðgangur að náms- og starfsráðgjöf. SFR og Vinnumálastofnun hafa gert samning við Fræðslusetrið Starfsmennt um að veita félagsmönnum ráðgjöf og upplýsingar um nám og úrræði. Samningurinn felur í sér að þú getur pantað viðtal við náms- og starfsráðgjafa hjá Starfsmennt þér að kostnaðarlausu. Sjá nánar hér. Þér er velkomið að hringja í Starfsmennt í síma 550-0060 ef þú vilt bóka tíma hjá ráðgjafa.
-
SFR blaðið og önnur útsend gögn s.s. tímavinnubók og félagsskírteini sem veitir afslætti á umsömdum stöðum.
Námskeið og námsstyrkir
-
Réttur til að sækja um styrki úr Starfsmenntunarsjóði SFR, nálgast má úthlutunarreglur og rafrænt umsóknarblað hér.
-
Réttur til að sækja Gott að vita námskeið sem félagið býður upp þér að kostnaðarlausu.
-
Þú getur sótt Námskeið fyrir atvinnuleitendur, sem hafa yfirheitið Nýr vettvangur, á vegum Fræðslusetursins Starfsmennt sem eru metin sem virkniúrræði á vegum Vinnumálastofnunnar. Námskeiðin eru félagsmönnum að kostnaðarlausu.
-
Þá stendur þér til boða að skrá þig á önnur námskeið hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt þér að kostnaðarlausu.
Orlofsmál
-
Atvinnuleitendur eiga jafnan rétt og aðrir félagsmenn á að leigja orlofshús og íbúðir félagsins.
-
Einnig getur þú sótt um aðra orlofskosti sem eru í boði á hverjum tíma s.s. flugávísanir, tilboð á hótelmiðum og miða í Hvalfjarðargöngin.
Styrktarsjóður
- Atvinnuleitendur hafa rétt á að sækja um styrki í Styrktar- og sjúkrasjóð SFR, sem styrkir ýmislegt á sviði heilsueflingar, endurhæfingar, sjálfshjálpar og forvarna gegn sjúkdómum.
- Einnig geta atvinnuleitendur sótt um sjúkradagpeninga ef þeir veikjast.
Ýmsar upplýsingar sem geta gagnast atvinnuleitendum má finna hér.
Stjórn félagsins vill styðja þennan hóp innan félagsins á þann hátt sem best nýtist. Við bendum þér á að hafa samband við skrifstofu félagsins ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar um það hvernig félagið getur stutt við hóp atvinnuleitenda innan félagsins.
Skrifstofa SFR er til húsa á Grettisgötu 89, 4. hæð, sími 525-8340, netfang: sfr@sfr.is . Skrifstofan er opin alla virka daga milli klukkan 9 og 16. Við leggjum metnað okkar í að taka vel á móti félagsmönnum okkar og bjóðum ykkur velkomin á skrifstofu félagsins.



