Fyrirmyndarstofnanir 2012
Stórar stofnanir með 50 starfsmenn eða fleiri – 3 efstu
1. sæti - Sérstakur saksóknari
Einkunn: 4,442
Fjöldi starfsmanna: 101
Helstu verkefni: Embætti sérstaks saksóknara var stofnað með lögum frá Alþingi í desember 2008. Embættinu var komið á fót til að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda í tengslum við og í kjölfar atburða er leiddu til bankahrunsins, hvort sem grunur tengist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga. Eftir atvikum fylgir sérstakur saksóknari rannsókn eftir með saksókn.
2. sæti - Umferðarstofa
Einkunn: 4,360
Fjöldi starfsmanna: 55
Helstu verkefni: Umferðarstofa með stjórnsýslu á sviði umferðarmála, einkum varðandi umferðarreglur, ökutæki, ökutækjaskráningar, ökupróf og ökunám, umferðarfræðslu, slysaskráningar og fleira. Umferðarstofa var stofnuð árið 2002.
3. sæti - Ríkisskattstjóri
Einkunn: 4,282
Fjöldi starfsmanna: 264
Helstu verkefni: Ríkisskattstjóri hefur leiðbeiningar- og samræmingarhlutverki að gegna þegar kemur að skattaframkvæmd. Ríkisskattstjóri hefur umsjón og eftirlit með álagningu skatta og gjalda sem á eru lögð af skattstjórum. Embætti ríkisskattstjóra er nú 9 starfsstöðvar eftir að skattstofur landsins voru sameinaðar embættinu.
Meðal stórar stofnanir með 20 til 49 starfsmenn – 3 efstu
1. sæti - Landmælingar Íslands
Einkunn: 4,527
Fjöldi starfsmanna: 30
Helstu verkefni: Landmælingar Íslands heyra undir umhverfisráðuneyti. Sögu stofnunarinnar má rekja aftur til aldamótanna 1900 er landmælingadeild danska herforingjaráðsins hóf kortagerð hér á landi. Landmælingar Íslands urðu sjálfstæð stofnun undir samgönguráðuneyti árið 1956., en hefur heyrt undir umhverfisráðuneyti frá árinu 1990. Hlutverk Landmælinga Íslands er að tryggja að ávallt séu til aðgengilegar og áreiðanlegar staðfræðilegar og landfræðilegar grunnupplýsingar um allt Íslands.
2. sæti - Skipulagsstofnun
Einkunn: 4,393
Fjöldi starfsmanna: 21
Helstu verkefni: Skipulagsstofnun heyrir undir umhverfisráðherra. Skipulagsstofnun fjallar um og veitir ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsmál, umhverfismat áætlana og mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Stofnunin stendur fyrir kynningum, ráðstefnum og fundahöldum sem og rannsóknum á sviði skipulagsmála og umhverfismats.
3. sæti - Skattrannsóknarstjóri
Einkunn: 4,303
Fjöldi starfsmanna: 30
Helstu verkefni: Skattrannsóknarstjóri hefur með höndum rannsóknir á brotum á lögum um skatta og gjöld sem á eru lögð af skattstjórum eða þeim falin framkvæmd á, ásamt rannsóknum á brotum á lögum um bókhald og lögum um ársreikninga.
Litlar stofnanir með færri en 20 starfsmenn – 3 efstu
1. sæti - Persónuvernd
Einkunn: 4,745
Fjöldi starfsmanna: 8
Helstu verkefni: Helstu verkefni Persónuverndar eru að afgreiða leyfisumsóknir, taka við tilkynningum og gefa fyrirmæli varðandi tækni, öryggi og skipulag vinnslu persónuupplýsinga. Enn fremur er Persónuvernd ætlað að hafa eftirlit með því að farið sé að lögum og öðrum reglum um vinnslu persónuupplýsinga, aðstoða við gerð starfs- og siðareglna veita ráðgjöf. Persónuvernd úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp koma um vinnslu persónuupplýsinga.
2. sæti - Sýslumaðurinn á Siglufirði
Einkunn: 4,659
Fjöldi starfsmanna: 6
Helstu verkefni: Sýslumaðurinn á Siglufirði fer með stjórnsýslu síns umdæmi og fer auk þess með lögreglustjórn í umdæminu og málefni bótanefndar. Þá sér embættið um greiðslu sanngirnisbóta. Sveitarfélag í umdæmi embættisins er Fjallabyggð.
3. sæti - Blindrabókasafn Íslands
Einkunn: 4,614
Fjöldi starfsmanna: 7
Blindrabókasafn Íslands heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneytið og hefur það hlutverk samkvæmt lögum að opna þeim sem ekki geta nýtt sér prentað letur aðgang að prentuðu máli á hljóðbók eða öðru aðgengilegu formi. Safnið framleiðir allar námsbækur fyrir á hljóðbók eða rafrænu formi en árlega eru lesnar um það bil 300 hljóðbækur á safninu.

