Beint á leiðarkerfi vefsins

Stofnun ársins 2012

Sigurvegarar í Stofnun ársins 2012 eru:

Sérstakur saksóknari
(flokkur stórra stofnana 50 starfsmenn og fleiri).

Landmælingar Íslands (flokkur meðalstórra stofnana 20 til 49 starfsmenn).

Persónuvernd
(flokkur lítilla stofnana með færri en 20 starfsmenn).

Hástökkvari ársins 2012 er Sýslumaðurinn í Borgarnesi.

Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags og VR. Könnunin er ein stærsta reglulega vinnumarkaðskönnun sem framkvæmd er hér á landi og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. SFR stendur fyrir könnuninni um Stofnun ársins í sjöunda sinn og er nú einnig í samstarfi við fjármálaráðuneytið annað árið í röð. Þetta árið er Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar líka með í könnuninni. Fjöldi stofnana sem tekur þátt er um 200 og félagsmenn annarra stéttarfélaga hjá ríkinu geta tekið þátt í könnuninni. Með því bætist við mikilvægur samanburður á milli stéttarfélaga.

Alls fengu um 44 þúsund starfsmenn á almennum og opinberum vinnumarkaði könnunina senda í ár, en það eru mun fleiri en síðastliðin ár eins og áður var nefnt. Stofnunum er nú í fyrsta sinn skipt upp í þrjá flokka. Stórar stofnanir (með 50 eða fleiri starfsmenn), millistórar stofnanir (með 20 til 49 starfsmenn) og minni stofnanir (með færri en 20 starfsmenn) og hægt er að bera saman árangur stofnana í hverjum flokki fyrir sig. Þátttakendur eru spurðir út í vinnutengda þætti eins og trúverðugleika stjórnenda, sjálfstæði í starfi, vinnuálag, vinnuskilyrði, álag og kröfur, sveigjanleika í starfi og fleira.

Hér að neðan má sjá ítarlega umfjöllun um könnunina, helstu niðurstöður hennar og um fyrirmyndarstofnanirnar 2012. Niðurstöður má einnig finna í sérriti um Stofnun ársins.

Stofnun ársins 2012   Ítarefni   Upplýsingar um sigurvegarana

» Framkvæmd könnunarinnar   

  » Athyglisverðar spurningar og svör   » Fyrirmyndarstofnanir 2012         
» Helstu niðurstöður                    » Samanburður á milli stéttarfélaga   » Hástökkvarar 2012
» Einkunnir stofnana   » Ítarlegri uppl. fyrir einstaka stofnanir         
    » Vinningsnúmerin í happadrættinu    

Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2012