Töflur með einkunnum stofnana
Niðurstöður
Heildareinkunn í Stofnun ársins 2011 er komust á lista er 3,74 stig en einkunnir eru gefnar á bilinu 1-5
Alls voru 18.784 manns í þýði. Svör bárust frá 9.524 starfsmönnum rúmlega 200 stofnana. Fullnægjandi svör voru um 9.000. Svarhlutfalli ver því 50% eða heldur lægra en í fyrra. Hafa ber þó í huga að þetta árið nær könnunin til allra ríkisstarfsmanna óháð stéttarfélagsaðild
Til þess að stofnun væri með í greiningunni á Stofnun ársins og á listunum sem birtir eru hér að neðan þurfti svarhlutfall starfsmanna stofnunarinnar að ná 35%. Auk þess þurftu 4 eða fleiri svör að berast frá minni stofnunum (færri en 50 starfsmenn) og 10 eða fleiri svör að berast frá stærri stofnunum (50 starfsmenn og fleiri).
Alls uppfylltu 170 stofnanir uppfylltu þessi skilyrði og frá þeim bárust um 8.700 svör. Meðalheildareinkunn þessara 170 stofnana á listanum er 3,83. Meðaleinkunn stofnana á sem komust á listann eru því aðeins hærri en heildarmeðaleinkunnin.
Í töflunum hér að neðan má einnig sjá að nokkur munur er á svörum eftir því hvort um minni eða stærri stofnanir er að ræða en starfsmenn minni stofnana eru almennt ánægðari með starfskjör sín og vinnuaðstæður.
Heildarlisti stofnana (einkunnarröð)
Heildarlisti stofnana (stafrófsröð)
Stærri stofnanir með samanburði við einkunn stofnunar frá því í fyrra
Minni stofnanir með samanburði við einkunn stofnunar frá því í fyrra
Heildarlistar út frá einkunn einstakra þátta:
Trúverðugleiki stjórnenda
Starfsandi
Launakjör
Vinnuskilyrði
Sveigjanleiki vinnu
Sjálfstæði í starfi
Ímynd stofnunar
Ánægja og stolt
Að lokum er hér tafla sem sýnir heildareinkunn í könnuninni stofnun ársins á milli ára ásamt vægi þátta á milli ára
| 2011 | 2010 | 2009 | ||||
| Þáttur | SFR | Sæti | SFR | Sæti | SFR | Sæti |
| Heildareinkunn | 3,83 | 3,85 | 3,91 | |||
| Trúverðugleiki stjórnenda | 3,78 | 6 | 3,84 | 5 | 3,96 | 4 |
| Starfsandi | 4,15 | 2 | 4,17 | 2 | 4,19 | 3 |
| Launakjör | 2,67 | 8 | 2,76 | 8 | 2,94 | 8 |
| Vinnuskilyrði | 3,94 | 5 | 3,91 | 4 | 3,92 | 5 |
| Sveigjanleiki vinnu | 4,09 | 3 | 3,73 | 7 | 3,70 | 7 |
| Sjálfstæði í starfi | 4,22 | 1 | 4,25 | 1 | 4,29 | 1 |
| Ímynd stofnunar | 3,76 | 7 | 3,83 | 6 | 3,89 | 6 |
| Ánægja og stolt | 4,09 | 4 | 4,13 | 3 | 4,28 | 2 |

