Beint á leiðarkerfi vefsins

Samanburður á SFR, VR, BSRB, BHM og KÍ

Könnunin stofnun ársins er samstarfsverkefni SFR og VR og eins og fram hefur komið tekur könnunin nú til allra starfsmanna ríkisstofnana óháð stéttarfélagsaðild.

Samanburður á einkunnargjöf SFR og VR 2011

Það er mjög áhugavert að bera saman niðurstöður fyrir þessa hópa. Þegar einkunnir SFR og VR eru bornar saman má sjá að félagsmenn í VR eru sem fyrr ánægðari með vinnustað sinn á heildina litið. Mestu munar um ánægju með launakjör en minnst skilur á milli varðandi vinnuskilyrði. Einnig er athyglisvert að heildareinkunn VR hækkar lítillega á milli áranna 2011 og 2010 á meðan heildareinkunn SFR félaga lækkar lítillega á sama tíma og að þrjú síðustu ár hefur munurinn á milli einkunnargjafar VR og SFR félagsmanna aukist VR í vil.

Þáttur VR Sæti SFR Sæti
Heildareinkunn 4,07   3,83  
Trúverðugleiki stjórnenda 4,02 6 3,78 6
Starfsandi 4,32 3 4,15 2
Launakjör 3,22 8 2,67 8
Vinnuskilyrði 4,02 7 3,94 5
Sveigjanleiki vinnu 4,33 2 4,09 4
Sjálfstæði í starfi 4,34 1 4,22 1
Ímynd stofnunar 4,15 5 3,76 7
Ánægja og stolt 4,23 4 4,09 3
         

Samanburður á einkunnargjöf eftir heildarsamtökum stéttarfélaga

Annar og ekki síður áhugaverður samanburður er á milli heildarsamtaka stéttarfélaga hjá hinu opinbera. En þar sem könnunin stóð nú öllum starfsmönnum ríkisstofnana til boða þá er í fyrsta sinn hægt að bera saman ánægju starfsmanna sundurgreinda eftir bandalögum stéttarfélaga. Hér í töflunni eru bornar saman einkunnir á þáttum eftir samtökum stéttarfélaga. Félagsmenn í aðildarfélögum KÍ eru almennt ánægðastir með stofnunina sína eins og sjá má í töflunni hér fyrir neðan. Heildareinkunn félagsmanna í aðildarfélögum BSRB er lægst. Félagsmenn í BSRB eru almennt ekki eins ánægðir með stjórnun, launakjör og starfsanda og félagsmenn annarra bandalaga en eru í meðallagi hvað varðar ánægju með vinnuskilyrði, sveigjanleika vinnunnar og sjálfstæði í starfi.

Þáttur BHM BSRB
Heildareinkunn 3,73 3,69 3,79
Trúverðugleiki stjórnenda 3,66 3,64 3,82
Starfsandi 4,15 4,07 4,21
Launakjör 2,48 2,42 2,57
Vinnuskilyrði 3,78 3,76 3,64
Sveigjanleiki vinnu 4,12 4,00 3,55
Sjálfstæði í starfi 4,12 4,16 4,40
Ímynd stofnunar 3,72 3,65 3,90
Ánægja og stolt 3,99 3,97 4,23
       

Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2011 » Samanburður á SFR, VR, BSRB, BHM og KÍ