Ítarlegar upplýsingar fyrir stofnanir
Ítarlegar upplýsingar fyrir stofnanir
Þátttökustofnunum gefst kostur á að kaupa skýrslur frá Capacent með gögnum fyrir sína stofnun, svo framarlega sem þátttaka starfsmanna uppfyllir skilyrði um lágmarkssvörun. Í þeirri skýrslu er gerð ítarleg greining á niðurstöðunum. Þá er meðaltal hverrar spurningar hjá viðkomandi stofnun borið saman við meðaltal allra stofnana á viðkomandi spurningu. Einnig eru breytingar frá síðustu mælingu skoðaðar þegar það á við.
Þeim sem áhuga hafa á frekari upplýsingum er bent á að hafa samband við Tómas Bjarnason hjá Capacent í síma 540 1000 eða tomas.bjarnason@capacent.is
Ráðgjafi að láni
Hulda Anna Arnljótsdóttir framkvæmdastjóri Fræðslusetursins Starfsmenntar.
Fræðslusetrið Starfsmennt hefur um margra ára skeið boðið stofnunum upp á þjónustu sem nefnist Ráðgjafi að láni til að aðstoða þær við að innleiða mannauðsstjórnun á vinnustað. Um er að ræða eitt þjónustuúrræða Starfsmenntar sem er í eigu fjármálaráðuneytisins og flestra stéttarfélaga innan BSRB og sinnir símenntun, ráðgjöf og starfsþróunarverkefnum opinberra starfsmanna. Markmið Ráðgjafa að láni er að útvega starfsmönnum og stjórnendum nauðsynlega þekkingu, tæki eða tól til að koma málefnum mannauðsstjórnunar í betra horf og bæta þannig starfsumhverfi, starfsþróunarmöguleika og líðan starfsfólks. Þjónustunni er einnig ætlað að koma til móts við síbreytilegt umhverfi og fleiri kröfur sem gerðar eru til starfa. Stjórnendur geta óskað eftir Ráðgjafa að láni í 40-80 klukkustundir í umsamin verkefni og hafa ríflega 80 samstarfsverkefni verið sett upp.
Öflug mannauðsþjónusta
Ráðgjafi að láni er aðgengilegt og öflugt úrræði sem stofnanir geta nýtt sér til að kortleggja símenntun, starfsþróun og þekkingarbókhald betur. Ákveðið var að fara af stað með þessa sérfræðiþjónustu til að tryggja að allar ríkisstofnanir ættu kost á úrvals ráðgjöf eða úttektum sem þær gætu síðan þróað áfram óháð stærð eða fjárhagslegri getu. Hlutverk Ráðgjafa að láni hefur því verið að ýta við stofnunum með því að bjóða upp á hagnýta þjónustu og skýrt fram settar niðurstöður. Ráðgjafinn tekur til hendinni á vinnustað með því að vinna þá vinnu sem ekki hefur fundist tími til að sinna áður. Hann tekur beinan þátt í að búa til þá afurð sem samið er um og vinnur á vettvangi með starfsfólki. Hann getur haft glöggt gests auga og bent á nýjar og óvæntar lausnir. Ráðgjafi að láni hefur oftar en ekki hreyft við málum og hvatt stofnanir til dáða með því að leggja línurnar og treysta undirstöðurnar sem stofnunin byggir síðan áframhaldandi vinnu á.
Verkefni ráðgjafans
Mannauðsstjórnun felur í sér að laða fram það besta í starfsmönnum og gefa þeim færi á að þróa hæfileika sína og getu. Sjónum er beint að vinnustaðnum og samskiptum og samningum allra sem þar eru. Viðfangsefnin ná m.a. yfir starfsþróunarferilinn frá ráðningu til starfsloka, þau taka til starfsánægju, gildismats og menningu stofnana ásamt því hvernig þekkingu er miðlað, aflað og viðhaldið. Verkefni Ráðgjafa að láni eru fjölbreytt en algengt er að stofnanir óski eftir aðstoð við að hanna og setja upp heildstæða starfstengda námsleið þar sem fræðsluþarfir og starfsmarkmið ríma saman. Einnig aðstoðar ráðgjafinn við innleiðingu starfsmannasamtala og metur hvaða önnur verkefni á sviði mannauðseflingar eru brýnust. Þannig hafa ráðgjafarnir komið að mótun starfsmanna-, jafnréttis- og heilsustefnu, ráðgjöf um ráðningar og starfslok eða styrkt nýliðafræðslu. Ráðgjafarnir hafa einnig unnið vinnustaðargreiningar, starfs- og hæfnislýsingar og komið með tillögur um hvernig bæta megi starfsumhverfi. Í kjölfar efnahagshrunsins hefur verið stutt við starfsfólk sem starfar undir miklu álagi í framlínu stofnana og stjórnendum veitt handleiðsla.
Uppbygging þekkingar
Starfsmennt kostar vinnu ráðgjafans að því gefnu að hún nýtist félagsmönnum aðildarfélaganna og áskilur sér alltaf rétt til að yfirfæra niðurstöður verkefna á aðrar stofnanir eða starfsstéttir. Þannig er tryggt að góðar hugmyndir og nýjar aðferðir nýtist fleirum en einni stofnun um leið og byggður er upp öflugur þekkingargrunnur. Í gegnum tíðina hefur safnast saman mikil þekking um þróun og árangur þjónustunnar og því hefur nýr mannauðsráðgjafi hafið störf hjá Starfsmennt til að mynda enn sterkari tengsl við stofnanir. Svið símenntunar og starfsþróunar er ört vaxandi og margt spennandi má læra af öðrum til að raungera hæfnisuppbyggingu starfsfólks á vinnustað. Það er sameiginlegt hagsmunamál allra að ný þekking nýtist í starfi, námshvatning og áhugi bæti starfsandann og auki um leið líkur á gæðastarfi stofnana.

