Hástökkvarar ársins 2011
Fjölbrautaskóli Snæfellinga er réttnefndur hástökkvari ársins 2011, en skólinn bætti sig langmest á milli ára. Hann var í neðsta sæti á lista minni stofnana sem komust á blað í fyrra en er nú í 19 sæti af 85 stofnunum. Hann fór úr raðeinkunn 2 á árinu 2010 í raðeinkunnina 89 á árinu 2011, eða upp um heil 87 sæti. Raðeinkunnin segir til um hvar stofnun stendur hlutfallslega miðað við aðrar stofnanir á listanum. Þetta er gríðarlega góður árangur hjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Hástökkvarinn
Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Einkunn: 4,22
Fjöldi starfsmanna: 31
Helstu verkefni: Fjölbrautaskóli Snæfellinga var formlega stofnaður 2004 og starfar samkvæmt lögum um framhaldsskóla. Um 200 nemendur stunda nám í skólanum. Fjölbrautaskóli Snæfellinga bætti sig mest á milli ára, hann var í neðsta sæti á lista minni stofnana sem komust á blað í fyrra en er nú í 19 sæti af 85 stofnunum. Hann fór úr raðeinkunn 2 á árinu 2010 í raðeinkunnina 89 á árinu 2011, eða upp um heil 87 sæti. Raðeinkunnin segir til um hvar stofnun stendur hlutfallslega miðað við aðrar stofnanir á listanum.
| Topp 5 hástökkvarar | Raðeinkunn 2011 |
Raðeinkunn 2010 |
Stökk |
| Fjölbrautaskóli Snæfellinga | 89 | 2 | 87 |
| Sýslumaðurinn í Bolungarvík | 94 | 36 | 58 |
| Útlendingastofnun | 75 | 31 | 44 |
| Ferðamálastofa | 39 | 8 | 31 |
| Héraðsdómur Reykjavíkur | 58 | 32 | 26 |

