Happdrættið 2011
Þátttakendur í könnuninni Stofnun ársins eru jafnframt þátttakendur í happdrætti. Þeir sem svöruðu könnuninni eiga möguleika á glæsilegum ferðavinningi, en gögnunum fylgdi happdrættismiði með númeri, sem vonandi allir hafa varðveitt.
Nú hafa verið dregnir út 10 vinningar, sem eru gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 50 þúsund krónur hvert.
Vinningsnúmerin eru: 3355, 5543, 9232, 13778, 13780, 32551, 52082, 64379, 64666, 69496.
Mögulega leynast vinningshafar þarna úti og því minnum við þá sem ekki hafa enn athugað númerin á sínum miða á að skoða hann vel.
Þeir sem tóku þátt í könnuninni, en hafa einhverra hluta vegna ekki lengur miðann undir höndum, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Tómas Bjarnason hjá Capacent, s. 540 1000 eða tomas.bjarnason@capacent.is.
Vinningshafar skulu hafa samband við Jóhönnu Þórdórsdóttur á skrifstofu SFR, s. 525 8344 eða johanna@sfr.is.

