Beint á leiðarkerfi vefsins

Fyrirmyndarstofnanir

Stærri stofnanir - 5 efstu:

1. sæti - Sérstakur saksóknari

Stofnun_arsins_2011_netlogoEinkunn: 4,40
Fjöldi starfsmanna: 69
Helstu verkefni: Embætti sérstaks saksóknara var stofnað með lögum frá Alþingi í desember 2008. Embættinu var komið á fót til að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda í tengslum við og í kjölfar atburða er leiddu til bankahrunsins, hvort sem grunur tengist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga. Eftir atvikum fylgir sérstakur saksóknari rannsókn eftir með saksókn.

2. sæti - Ríkisskattstjóri

2011Einkunn: 4,21
Fjöldi starfsmanna: 264
Helstu verkefni: Ríkisskattstjóri hefur leiðbeiningar- og samræmingarhlutverki að gegna þegar kemur að skattaframkvæmd. Ríkisskattstjóri hefur umsjón og eftirlit með álagningu skatta og gjalda sem á eru lögð af skattstjórum. Skattstofur landsins hafa verið sameinaðar Ríkisskattstjóra og teljast nú til stofnunar Ríkisskattstjóra allar skattstofur landsins auk aðalskrifstofu.

 

3. sæti - Landgræðsla ríkisins

2011Einkunn: 4,19
Fjöldi starfsmanna: 60
Helstu verkefni: Landgræðsla ríkisins heyrir undir umhverfisráðuneytið og vinnur samkvæmt lögum um landgræðslu að stöðvun jarðvegs- og gróðureyðingar, gróðureftirliti og gróðurvernd. Ennfremur að fræðslu, leiðbeiningum, rannsóknum og þróunarstarfi á þessu sviði. Landgræðslan hét áður Sandgræðsla Íslands og var stofnuð árið 1907.

4. sæti - Ás styrktarfélag

2011Einkunn: 4,12
Fjöldi starfsmanna: 165
Helstu verkefni: Ás styrktarfélag er sjálfseignarstofnun í þjónustu við fatlaða og hefur í gegnum árin komið á fót umfangsmiklum rekstri. Þá hefur félagið notið velvilja og hafa einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki átt drjúgan þátt í að styðja félagið til vaxtar. Í dag veitir Ás styrktarfélag hátt á þriðja hundrað manns þjónustu í formi búsetu, dagþjónustu og vinnu.

5. sæti - Fjölbrautaskólinn í Garðabær

2011Einkunn: 4,09
Fjöldi starfsmanna: 85
Helstu verkefni: Fjölbrautaskólinn í Garðabæ var formlega stofnaður 1984 og starfar samkvæmt lögum um framhaldsskóla. Þar er kveðið á um almenn markmið og hlutverk  framhaldsskóla á Íslandi, þ.e. að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðissamfélagi og veita  þeim alhliða menntun sem nýtist bæði í starfi og tómstundum. Um 800 nemendur stunda nám í skólanum.

Minni stofnanir - 5 efstu:

1. sæti - Sýslumaðurinn í Vík

Stofnun_arsins_2011_netlogoEinkunn: 4,79
Fjöldi starfsmanna: 5
Helstu verkefni: Sýslumaðurinn í Vík fer með stjórnsýslu síns umdæmis, sem er Mýrdals- og  Skaftárhreppur, eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Verkefnin tengjast m.a.  lögráðamálum, þinglýsingum, sifjamálum, dánarbúum og fullnustuaðgerðum. Sérstök verkefni eru að annast útgáfu og ritstjórn Lögbirtingablaðsins og leyfisveitingar til þeirra sem hyggjast starfrækja útfararþjónustu.

2. sæti - Norðurlandsskógar

2011Einkunn: 4,70
Fjöldi starfsmanna: 4
Helstu verkefni: Norðurlandsskógar voru formlega stofnaðir í júlí árið 2000. Um er að ræða landshlutabundið skógræktarverkefni til 40 ára sem hefur aðsetur í sameiginlegri skrifstofuaðstöðu með Skógrækt Ríkisins á Akureyri. Megin markmið Norðurlandsskóga er að stuðla að skóg- og skjólbeltarækt á Norðurlandi og treysta með því byggð og fjárfesta í nýrri auðlind sem efla mun atvinnulíf í framtíðinni.

3. sæti - Blindrabókasafn Íslands

2011Einkunn: 4,63
Fjöldi starfsmanna: 7
Helstu verkefni: Blindrabókasafn Íslands er ríkisstofnun sem heyrir undir mennta- og  menningarmálaráðuneytið. Hlutverk safnsins samkvæmt lögum um Blindrabókasafn er að opna þeim sem ekki geta nýtt sér prentað letur aðgang að prentuðu máli á hljóðbók eða öðru aðgengilegu formi. Lánþegar safnsins eru því blindir, sjónskertir, lesblindir eða þeir sem vegna líkamlegra hamlana geta ekki nýtt sér hefðbundið prentletursform. Safnið framleiðir allar námsbækur fyrir framhaldsskólanema í þessum hópi á rafrænu formi.

4. sæti - Skattrannsóknarstjóri

2011Einkunn: 4,53
Fjöldi starfsmanna: 30
Helstu verkefni: Skattrannsóknarstjóri hefur með höndum rannsóknir á brotum á lögum um skatta og gjöld sem á eru lögð af skattstjórum eða þeim falin framkvæmd á, ásamt  rannsóknum á brotum á lögum um bókhald og lögum um ársreikninga.

5. sæti - Sýslumaðurinn á Sauðárkróki

2011Einkunn: 4,52
Fjöldi starfsmanna: 7
Helstu verkefni: Sýslumaðurinn á Sauðárkróki fer með lögreglustjórn í umdæmi. Embættið annast framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2011 » Fyrirmyndarstofnanir