Beint á leiðarkerfi vefsins

Framkvæmd könnunarinnar

Framkvæmd

Framkvæmd könnunarinnar Stofnun ársins var með breyttu sniði í ár miðað við fyrri ár. Fjármálaráðuneytið var nú í samstarfi við SFR um Stofnun ársins. Listi yfir ríkisstarfsmenn kom frá fjármálaráðuneytinu og var starfsfólki ríkisstofnana send könnun á netfang eða í pósti eftir því sem við átti. Vegna þessa er fjöldi stofnana og svarenda mun meiri nú en verið hefur undanfarin ár. Heildarfjöldi stofnana sem komst á blað nú var 170 en var 90 í fyrra. Niðurstöður nú byggjast á tæplega 8.700 svarendum en byggðust á rúmlega 3.600 svarendum í fyrra.

Könnun meðal félagsmanna SFR fór fram með sama hætti og verið hefur undanfarin ár. Hringt var í félagsmenn SFR og þeim boðið að taka þátt í könnuninni, annað hvort með því að fá spurningalistann sendan í pósti eða á Netinu. Ef ekki náðist í félagsmann þá var listinn sendur í tölvupósti ef netfang var til staðar, annars var listinn sendur í pósti. Könnunin náði til allra félagsmanna SFR sem voru í 50% starfi eða meira og höfðu verið félagsmenn SFR í a.m.k. fjóra mánuði.

Öðrum stofnunum en ríkisstofnunum bauðst einnig að könnunin næði til allra starfsmanna þeirra. Í þeim tilvikum sendu stjórnendur lista með netföngum og nöfnum starfsmanna og var starfsfólkinu sendur listi á Netinu ef slíku var við komið, annars var þeim sendur spurningalisti í pósti. Alls nýttu sex stofnanir sér þetta. Alls voru 18.784 manns í þýði. Svör bárust frá 9.524 starfsmönnum rúmlega 200 stofnana, en svör 548 svarenda voru ekki nothæf og því voru svör 8.976 manns notuð við úrvinnslu, sem gerir 50% svarhlutfall.  Mikilvægt er að hafa í huga að þetta er svörun úr heildarhópi eða þýði því allir félagsmenn SFR og starfsmenn ríkisstofnana, að uppfylltum framangreindum skilyrðum, höfðu möguleika á að taka þátt.  Til þess að stofnun væri tekin með í greininguna um Stofnun ársins 2011 þurfti fjöldi svarenda að ná ákveðnu lágmarki. Krafa var gerð um 35% svarhlutfall frá stofnun. Auk þess var miðað við að lágmarki 4 svarendur hjá minni stofnunum, þ.e. með færri en 50 starfsmenn. Hjá stofnunum með 50 starfsmenn eða fleiri þurftu að lágmarki 10 starfsmenn að hafa sent svör sín til Capacent Gallup. Alls uppfylltu 170 stofnanir þessi skilyrði og byggjast niðurstöður Stofnunar ársins 2011 á svörum 8.676 starfsmanna þessara stofnana.

Tilgangur

Tilgangur könnunarinnar „Stofnun ársins“ er nú líkt og fyrri ár sá að gera stjórnendum kleift að vinna markvisst að úrbótum þar sem þeirra er þörf og veita stjórnendum aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk. Miðað við þá stefnu sem mörkuð hefur verið má búast við sameiningum, áframhaldandi niðurskurði og uppsögnum á næstu mánuðum. Slíkar aðgerðir gera miklar kröfur til allra aðila sem tengjast málinu: Stjórnvalda, stjórnenda og starfsmanna.  Þrátt fyrir erfiðar aðstæður er það réttmæt krafa að allir aðilar reyni að búa starfsmönnum sínum eins jákvætt og styðjandi starfsumhverfi og hægt er nú þegar verkefnin eru jafn gríðarleg og íslenskt þjóðfélag stendur frammi fyrir.  Mikilvægt er að allar ákvarðanir séu teknar af yfirvegun og byggðar á vandaðri stjórnsýslu, en aldrei reynir meira á hæfni stjórnenda en á erfiðum tímum. Mælingar á frammistöðu stofnana á þessu sviði eru ekki bara sjálfsagðar heldur nauðsynlegar. Með þessu móti fá starfsmenn og stjórnendur kærkomnar upplýsingar til að meta frammistöðu sinnar stofnunar.

Niðurstöðurnar geta starfsmenn notað til að meta eigin vinnustað í samanburði við aðrar stofnanir og fyrirtæki, bæði á opinberum og almennum vinnumarkaði. En eins og áður er getið eru þessar upplýsingar ekki síður dýrmætar fyrir stjórnendur, hvort sem um er að ræða staðfestingu á því sem vel er gert í starfsmannamálum eða hvatning til að gera betur.

Átta þættir mældir

Átta þættir voru mældir, líkt og fyrir ári: Trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar og ánægja og stolt. Þættirnir átta eru samsettir úr þeim spurningum sem falla undir hvern þátt. Hverri spurningu er hægt að svara á fimm punkta kvarða (1-5) þar sem hærri endi kvarðans gefur til kynna ánægju með það sem spurt er um en lægri endinn gefur til kynna óánægju.  

Valið á Stofnun ársins 2011 byggist á heildareinkunn sem er samsett úr framangreindum átta þáttum. Í samsetningu heildareinkunnar er vægi þáttanna átta ólíkt og er vægi þáttarins „trúverðugleiki stjórnenda“ mest í heildareinkunn (28%), en minnst er vægi sveigjanleika vinnu, ímyndar og sjálfstæðis í starfi (9%). Vægi einstakra þátta í heildareinkunn byggir á því hve stórt hlutfall dreifingarinnar hver þáttur skýrir af dreifingu allra spurninga. Tölfræðileg greining leiddi í ljós að spurningarnar áttu vel heima í viðeigandi þætti.

Breytingar í stofnanahópi ríkisins

Um síðustu áramót urðu þær breytingar að svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra sem voru 5 talsins, voru lagðar niður. Ástæða þess var sú að þann 1. janúar síðastliðinn var málaflokkurinn færður yfir til sveitarfélaganna samkvæmt samningi við ríkið. Við þessar breytingar fluttust 1500 starfsmenn milli aðila. Nú hefur það verið svo á undanförnum árum að nokkur eftirvænting hefur ríkt innan raða SFR um hvernig svæðisskrifstofurnar kæmu út í Stofnun ársins. Ástæða þess er sú að málaflokkurinn er flókinn og starfsmannamál og rekstur þjónustunnar með afar fjölbreyttum hætti. Við yfirfærslu málaflokksins verður nú breyting á. Hjá sveitarfélögunum er málaflokknum komið fyrir innan félagsþjónustunnar og er því ekki lengur sérstök og lokuð rekstrareining. Erfiðara er því að gera sér grein fyrir hvernig mælingum verður fyrir komið og hvernig viðkomandi einingar verða rammaðar inn í könnuninni. Því verður ekki hjá því komist að þessu sinni að undanskilja málefni fatlaðra í könnuninni.  SFR þarf að kynnast rekstrarumhverfi málaflokks fatlaðra hjá sveitarfélögunum betur áður en hægt er að búa til réttar mælistikur. Það verður því verkefni inn í framtíðina og stefnt verður að því að koma málefni fatlaðra inn í könnunina aftur sem fyrst.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2011 » Framkvæmd könnunarinnar