Beint á leiðarkerfi vefsins

Allir ríkisstarfsmenn með

Allir ríkisstarfsmenn tóku þátt í að velja Stofnun ársins

Ágústa H. Gústafsdóttir sérfræðingur á starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins

Frá því að SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu framkvæmdi könnunina „Stofnun ársins“ í fyrsta sinn fyrir fimm árum hefur gagnsemi hennar margsannað sig og fjölmargar ríkisstofnanir gengið á undan með góðu fordæmi og boðið öllum  starfsmönnum sínum þátttöku.

Í ljósi góðrar reynslu af könnuninni sammæltust  fjármálaráðuneytið og samstarfsaðilar þess í Þróunar- og símenntunarsjóði SFR og Fræðslusetrinu Starfsmennt um að víkka út starfsánægjukönnun SFR og veita öllum ríkisstarfsmönnum tækifæri til þátttöku og til að tjá sig um líðan sína í starfi. Því er könnunin „Stofnun ársins“ lögð fyrir alla ríkisstarfsmenn í fyrsta sinn í ár.

  1. Ríkið er stærsti þekkingarvinnustaður á Íslandi og því er mannauðurinn mikilvægasti þáttur í starfsemi þess. Niðurstöður kannanna af þessu tagi gera fjármálaráðuneytinu kleift að draga upp heildstæða mynd af starfsumhverfi ríkisstarfsmanna hvað varðar stjórnun þeirra, skipulag og starfsaðstæður.
  2. Stjórnendur ríkisstofnana fá með könnuninni hagnýtt verkfæri til að bæta mannauðsstjórnun stofnana sinna með markvissum hætti.
  3. Með þátttöku í könnunum veita starfsmenn upplýsingar um viðhorf til eigin starfsumhverfis og liggja niðurstöður kannana til grundvallar við gerð stefnumótunar í mannauðsmálum.
  4. Nýti menn niðurstöðurnar á réttan hátt leiðir það til þess að: Starfskraftar einstaklinga fá að njóta sín við hvetjandi starfsskilyrði þar sem áhersla er lögð á virðingu í samskiptum og starfsmenn fá jöfn tækifæri til að auka við og nýta þekkingu sína í starfi.

Stefna í mannauðsmálum ríkisins

Fjármálaráðuneytið hyggst beita sér fyrir því með markvissari hætti en áður að mannauðsstefnu verði fylgt í rekstri stofnana ríkisins. Því verði lögð áhersla á markvissari innleiðingu á aðferðum mannauðsstjórnunar hjá ríkisstofnunum. Í því skyni verður stofnunum gert að setja sér heildstæða mannauðsstefnu. Stuðningur við framkvæmd starfsmannamála stofnana verður aukinn, einkum með tilliti til þess að áherslur í mannauðsmálum styðji við markmið stofnunar, eftirlit með framkvæmd stofnana í launa- og starfsmannamálum verður aukið og árlega verður metið hvort að stofnanir uppfylli lágmarkskröfur um heildstæða mannauðsstefnu. Því er ljóst að stöðumat af því tagi sem starfsánægjukönnunin veitir, gefur gagnlegar upplýsingar um stöðu mannauðsmála hjá ríkisstofnunum og er mikilvægt innlegg í það starf sem fyrir höndum er.

Af hverju er fjármunum eytt í könnun. Munu niðurstöðurnar ekki litast um of af erfiðum aðstæðum?

Ljóst er að hjá töluverðum hluta stofnana hefur álag aukist verulega vegna efnahagsástandsins. Eftirspurn eftir þjónustu hefur víða aukist á sama tíma og skera hefur þurft niður vinnu starfsmanna. Þessar aðstæður hafa leitt til aukins álags á starfsmenn. Gera mætti ráð fyrir að aðstæður af þessu tagi hafi neikvæð áhrif á þætti eins og vinnumenningu, hollustu og starfsanda og hafa heyrst raddir um að betra væri að fresta viðhorfsmælingum í þeim tilgangi að forðast neikvæðar niðurstöður. En þá ber að horfa til grundvallar tilgangs starfsumhverfiskannana, en hann er að fá upplýsingar frá starfsmönnum um líðan þeirra í starfi og viðhorf til starfsumhverfis síns á hverjum tíma og fá fram samanburð milli tímabila. Enginn vafi liggur á að það er ekki síður mikilvægt að kanna viðhorf starfsmanna á tímum samdráttar eins og þegar vel árar. Könnunin veitir stjórnendum tækifæri til að bregðast við niðurstöðunum þrátt fyrir sérstakar aðstæður eða einmitt vegna þeirra og leggja sitt af mörkum til að tryggja starfsmönnum gott vinnuumhverfi og góða vinnuaðstöðu.

Að ári liðnu

Kannanir af þessu tagi draga upp heildstæða mynd af starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Mikilvægt er að framkvæma mælingar sem þessar með reglubundnum hætti og þess vegna er stefnt að því að endurtaka könnunina að ári liðnu. Með þeim hætti verður betur stuðlað að markvissri þróun mannauðsstjórnunar hjá ríkinu. Fjármálaráðuneytið fagnar því góða samstarfi sem það átti við starfsmenn SFR við undirbúning, fyrirlögn og úrvinnslu könnunarinnar.


Slóðin þín:

Kannanir SFR » Stofnun ársins » Stofnun ársins 2011 » Allir ríkisstarfsmenn með