Samanburður á SFR og VR
Nú í fimm á í röð hafa sömu spurningar verið lagðar fyrir félagsmenn SFR og félagsmenn í VR.
Könnunin heitir Fyrirtæki ársins hjá VR en Stofnun ársins hjá okkur í SFR.
Niðurstöður sýna nokkurn mun á svörun starfsmanna á almennum og opinberum vinnumarkaði. Þar sem félagsmenn á almenna vinnumarkaðinum eru almennt jákvæðari á vinnuumhverfi sitt en starfsmenn á opinberum vinnumarkaði.
Heildareinkunnir fyrirtækja eru aðeins hærri en stofnana og hafa verið síðustu ár. Munurinn í ár er heldur meiri en hann var í fyrra. Félagsmenn beggja stéttarfélaga gefa þættinum launakjör lægstu einkunn. Sjálfstæði í starfi fær hæstu einkunn hjá báðum.
Hér á töflunni má sjá samanburð á einkunnum fyrir þættina.
Athugið að vægi hvers þáttar er mismikið í heildareinkunninni.
| Þáttur | SFR | Sæti | VR | Sæti |
| Heildareinkunn | 3,85 | 4,06 | ||
| Trúverðugleiki stjórnenda | 3,85 | 5 | 4,05 | 6 |
| Starfsandi | 4,17 | 2 | 4,32 | 2 |
| Launakjör | 2,76 | 8 | 3,33 | 8 |
| Vinnuskilyrði | 3,91 | 4 | 4,05 | 5 |
| Sveigjanleiki vinnu | 3,73 | 7 | 3,97 | 7 |
| Sjálfstæði í starfi | 4,25 | 1 | 4,35 | 1 |
| Ímynd stofnunar | 3,83 | 6 | 4,16 | 4 |
| Ánægja og stolt | 4,14 | 3 | 4,27 | 3 |

