Fyrirmyndarstofnanir 2010
Stofnunum er skipt upp í stærri stofnanir, 50 eða fleiri starfsmenn, og minni stofnanir, færri en 50 starfsmenn, en það hefur verið gert frá því árið 2008.
STÆRRI STOFNANIR
1. sæti Umferðarstofa
Einkunn 4,18 (4,185)
Fjöldi starfsmanna: 54
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Umferðarstofa fer meðstjórnsýslu á sviði umferðarmála, einkum varðandi umferðarreglur, ökutæki, ökutækjaskráningar, ökupróf og ökunám, umferðarfræðslu, slysaskráningar og fleira. Umferðarstofa var stofnuð árið 2002.
2. sæti Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi
Einkunn 4,18 (4,179)
Fjöldi starfsmanna: 50
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð
stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi (SAust) annast í umboði félagsmálaráðuneytisins rekstur og stjórnun málaflokksins auk þess að bera fjárhagslega og faglega ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk á Austurlandi. SAust stuðlar að því að fólk fái notið stuðnings og ráðgjafar, auk almenns réttar til þjónustu ríkis og sveitarfélaga. SAust vinnur einnig að því að samræma þá þjónustu sem veitt er af mismunandi aðilum.
3. sæti Landgræðsla ríkisins
Einkunn 4,16
Fjöldi starfsmanna: 60
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Landgræðsla ríkisins heyrir undir umhverfisráðuneytið og vinnur samkvæmt lögum um landgræðslu að stöðvun jarðvegs- og gróðureyðingar, gróðureftirliti og gróðurvernd. Ennfremur að fræðslu, leiðbeiningum, rannsóknum og þróunarstarfi á þessu sviði. Landgræðslan hét áður Sandgræðsla Íslands og var stofnuð árið 1907.
4. sæti Matís ohf.
Einkunn 4,15 (4,153)
Fjöldi starfsmanna: 96
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Hlutafélagið Matís ohf. tók til starfa 1. janúar 2007 og heyrir undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Í hlutafélaginu sameinuðust þrjár ríkisstofnanir sem unnið höfðu að matvælarannsóknum
og þróun í matvælaiðnaði. Þetta voru Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir Keldnaholti og Rannsóknastofa Umhverfisstofnunar. Helstu verkefni Matís tengjast vöruþróun, fiskeldi, vinnslutækni, framleiðslutækni, rekjanleika, aðfangastjórnun, þjónustumælingum, erfðatækni og líftækni.
5. sæti Ríkisskattstjóri
Einkunn 4,15 (4,146)
Fjöldi starfsmanna: 264
Könnunin náði til félagsmanna SFR hjá skattstofunum og allra starfsmanna Ríkisskattstjóra á starfsstöðinni, Laugavegi 166, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Ríkisskattstjóri hefur leiðbeiningar- og samræmingarhlutverki að gegna þegar kemur að skattaframkvæmd. Ríkisskattstjóri hefur umsjón og eftirlit með álagningu skatta og gjalda sem á eru lögð af skattstjórum. Skattstofur landsins voru sameinaðar Ríkisskattstjóra um síðustu áramót. Því teljast nú allar skattstofur landsins auk aðalskrifstofu til stofnunar Ríkisskattstjóra.
MINNI STOFNANIR
1. sæti Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Einkunn 4,73
Fjöldi starfsmanna: 7
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Sýslumaðurinn á Hvolsvelli fer með lögreglustjórn í umdæmi sínu og umdæmi sýslumannsins í Vík. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli annast veitingu happdrættisleyfa. Sveitarfélög í umdæmi embættisins eru Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahreppur.
2. sæti Sýslumaðurinn í Vík
Einkunn 4,57
Fjöldi starfsmanna: 5
Könnunin náði til félagsmanna SFR.
Helstu verkefni: Sýslumaðurinn í Vík fer með stjórnsýslu síns umdæmis, sem er Mýrdals- og Skaftárhreppur, eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Verkefnin tengjast m.a. lögráðamálum, þinglýsingum, sifjamálum, dánarbúum og fullnustuaðgerðum. Sérstök verkefni eru að annast útgáfu og ritstjórn Lögbirtingablaðsins og leyfisveitingar til þeirra sem hyggjast starfrækja útfararþjónustu.
3. sæti Skattrannsóknarstjóri
Einkunn 4,52
Fjöldi starfsmanna: 22
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Skattrannsóknarstjóri hefur með höndum rannsóknir á brotum á lögum um skatta og gjöld sem á eru lögð af skattstjórum eða þeim falin framkvæmd á, ásamt rannsóknum á brotum á lögum um bókhald og lögum um ársreikninga.
4. sæti Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Einkunn 4,51
Fjöldi starfsmanna: 30
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Sýslumaðurinn í Hafnarfirði fer með stjórnsýslu síns umdæmis, eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir um. Verkefnin tengjast m.a. lögráðamálum, þinglýsingum, sifjamálum, dánarbúum og fullnustuaðgerðum. Sérstök verkefni embættisins eru að annast afgreiðslu sakavottorða, vegabréfa og ökuskírteina. Einnig sér embættið um löggildingu fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala og innheimtu veiðigjalds. Sveitarfélög í umdæmi embættisins eru Garðabær og Hafnarfjarðarkaupstaður og Sveitarfélagið Álftanes.
5. sæti Landmælingar Íslands
Einkunn 4,40
Fjöldi starfsmanna: 28
Könnunin náði til allra starfsmanna, óháð stéttarfélagsaðild.
Helstu verkefni: Landmælingar Íslands heyra undir umhverfisráðuneyti. Sögu stofnunarinnar má rekja aftur til
aldamótanna 1900 er landmælingadeild danska herforingjaráðsins hóf kortagerð hér á landi. Landmælingar Íslands urðu sjálfstæð stofnun undir samgönguráðuneyti árið 1956, en hefur heyrt undir umhverfisráðuneyti frá árinu 1990. Hlutverk Landmælinga Íslands er að tryggja að ávallt séu til aðgengilegar og áreiðanlegar staðfræðilegar og landfræðilegar grunnupplýsingar um allt Ísland.

