Framkvæmd könnunarinnar
FRAMKVÆMD
Framkvæmd könnunarinnar var í höndum Capacent Gallup. Í desember sl. fengu forstöðumenn ríkisstofnana, sjálfseignarstofnana og fyrirtækja þar sem SFR félagar vinna, sent kynningarbréf þar sem ítarlega var fjallað um könnunina og framkvæmd hennar. Sérstaklega var fjallað um hvernig stofnanir bæru sig að ef þær vildu að allir starfsmenn, óháð stéttarfélagsaðild, tækju þátt. Félagsmenn voru einnig hvattir til að nota tækifærið og taka þátt í könnuninni í SFR blaðinu og á neti SFR.
Framkvæmd könnunarinnar var með þeim hætti að hringt var í félagsmenn SFR og þeim boðið að taka þátt í könnuninni á netinu eða í hefðbundnum pósti. Ef ekki náðist í viðkomandi, en netfang var tiltækt, var henni eða honum sendur listi í tölvupósti. Þeir sem ekki höfðu netfang fengu listann sendan í venjulegum pósti. Þeir sem náðist í en ekki vildu taka þátt fengu ekki senda könnun.
Eins og áður sagði var þeim stofnunum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum þar sem félagsmenn SFR starfa, gefinn kostur á að bjóða öllu starfsfólki sínu þátttöku, óháð stéttarfélagsaðild. 34 stofnanir, sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki óskuðu eftir þátttöku fyrir alla starfsmenn. Spurningalistar voru svo sendir út í febrúar.
Sendir voru út ríflega 7.600 spurningalistar bæði rafrænt og með pósti. Af þeim fundust ekki 373 þannig að endanlegt úrtak var rúmlega 7.300 einstaklingar. Þar af skiluðu rúmlega 4.400 starfsmenn inn svörum. Nokkrir listar voru ekki fylltir út á fullnægjandi hátt, þannig að alls voru tæplega 4.000 listar við úrvinnsluna. Svarhlutfall var 55% núna, en 57% í fyrra og hefur því lækkað lítillega.
TILGANGUR
Tilgangur könnunarinnar „Stofnun ársins" er nú líkt og fyrri ár að gera stjórnendum kleift að vinna markvisst að úrbótum þar sem þeirra er þörf og veita stjórnendum aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk.
Gríðarlega mikilvægt er að meta stöðuna meðal starfsmanna nú sem fyrr, enda mikil óvissa á vinnumarkaði og fyrirsjáanlegt að næstu mánuðir og misseri verði launafólki og stofnunum erfið. Miðað við þá stefnu sem mörkuð hefur verið má búast við sameiningum, niðurskurði og mögulega uppsögnum á næstu mánuðum. Mikilvægt verður að allar ákvarðanir séu teknar af yfirvegun og byggðar á vandaðri stjórnsýslu, en aldrei reynir meira á hæfni stjórnenda en á erfiðum tímum.
Ljóst er að ekki er ætlunin að skerða þjónustustig heldur ná fram hagræðingu með öðrum hætti. Þessi staða gerir miklar kröfur til allra aðila sem tengjast málinu: Stjórnvalda, stjórnenda og starfmanna. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður er það er réttmæt krafa að allir aðilar reyni að búa starfsmönnum sínum eins jákvætt og styðjandi umhverfi og hægt er nú þegar verkefnin eru svo gríðarleg sem við stöndum frammi fyrir.
Almennt gildir að samræmi verður að vera milli aukinna krafna um árangur stofnana og þeirra starfsskilyrða sem starfsmönnum eru búin. Mælingar á frammistöðu stofnana á þessu sviði eru ekki bara sjálfsagðar heldur nauðsynlegar. Með þessu móti fá starfsmenn og stjórnendur kærkomnar upplýsingar til að meta frammistöðu sinnar stofnunar.
Niðurstöðurnar geta starfsmenn því notað til að meta eigin vinnustað í samanburði við aðrar stofnanir og fyrirtæki, bæði á opinberum og almennum vinnumarkaði. En eins og áður er getið eru þessar upplýsingar ekki síður dýrmætar fyrir stjórnendur, hvort sem um er að ræða staðfestingu á því sem vel er gert í starfsmannamálum eða hvatning til að gera betur.
ÁTTA ÞÆTTIR MÆLDIR
Átta þættir voru mældir, líkt og fyrir ári: Trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar og ánægja og stolt.
Þættirnir átta eru samsettir úr þeim spurningum sem falla undir hvern þátt. Hverri spurningu er hægt að svara á fimm punkta kvarða (1-5) þar sem hærri endi kvarðans gefur til kynna ánægju með það sem spurt er um en lægri endinn gefur til kynna óánægju.
Valið á Stofnun ársins 2010 byggist á heildareinkunn sem er samsett úr framangreindum átta þáttum. Í samsetningu heildareinkunnar er vægi þáttanna átta ólíkt og er vægi þáttarins „trúverðugleiki stjórnenda" mest í heildareinkunn (28%), en minnst er vægi launakjara, sveigjanleika vinnu og sjálfstæðis í starfi (9%). Vægi einstakra þátta í heildareinkunn byggir á því hve stórt hlutfall dreifingarinnar hver þáttur skýrir af dreifingu allra spurninga. Tölfræðileg greining leiddi í ljós að spurningarnar áttu vel heima í viðeigandi þætti.



